Lýsing
Úr stofunni er útgengt er út í garðinn og innangengur bílskúr .
Fallegur skjólsæll garður með timburverönd. Húsið stendur innarlega í rólegri botnlangagötu.
Eignin var seld en fell á fyrirvara og er því aftur komin í sölu.
Laus við kaupsamning.
*Smelltu hérna til að sjá videó af eigninni *
Eigin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 180 fm þar af er bílskúrinn 27 fm
Neðri hæð:
Forstofa er rúmgóð með góðum fataskáp og marmara á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Geymslan er rúmgóð með hillum.
Bílskúrinn er innangengur frá fyrstu hæðinni með rafdrifum opnara, heitu og köldu vatni og hillum .
Fallegur marmarastigi er upp á efri hæðina.
Efri hæð:
Sameiginlegt rými stofu og borðstofu en þar útgengt út í gróinn og fallegan garð með timburverönd og fallegum garði með trjágróðri.
Stofa- borðstofa er með aukinni lofthæð, fallegum arinn og mikið gluggum með marmara á gólfi.
Eldhús með flísalögðu gólfi og innréttingu á tvo vegu með flísum á milli skápa, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Hjónaherbergið er með fallegu útsýni yfir Esjuna, rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Barnaherbergi með útsýni yfir Esjuna og parket á gólfi.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, innrétting með efri og neðri skápum, gert er ráð fyrir sturtu á bak við hornskáp.
Þvottahús er rúmgott með skápum og flísum á gólfi.
Að sögn seljenda voru þakrennur og þakkantar nýlega endurnýjað (3 eða 4 ár síðan).
Það er hiti í allri stéttinni, gangstéttinni að útidyrunum og á bílastæðunum.
Þetta er falleg og vel um gengin eign í Húsahverfi í Grafarvogi þar sem stutt er í verslun.
Allar nánari upplýsingar veitir Inga Reynis í síma 820-1903 eða á tölvupóstinum inga@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...