Lýsing
Um er að ræða vel skipulagt og bjart fimm herbergja 134,7 fm. raðhús sem er vel staðsett í botnlanga. Húsið er á tveimur hæðum ásamt rislofti, og er með skjólgóða og sólríka afgirta verönd sem snýr í suður. Snjóbræðsla er á stéttinni fyrir framan hús og tvö einkastæði beint fyrir framan húsið. Baðherbergi allt nýlega endurnýjað á glæsilegan máta. Allar tengingar fyrir rafmagnsbíl eru klárar.
Húsið skiptist í forstofu, þvottaherbergi, gestasnyrtingu, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og risloft en þar er fjórða svefnherbergið. Einnig er sérgeymsla fyrir framan við húsið. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 104.350.000 kr.
Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast. 6 900 820 eða sveinn@landmark.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu, hægra megin við hana er hol með rúmgóðu fatahengi, flísar á gólfi. Þvottahúsið er inn af holinu og er það með vaski og innréttingu með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Þvottahúsið nýtist einnig sem geymsla. Gestasalerni er flísalagt og innréttingu með vaski. Stofa og borðstofa eru afar bjartar með nýlegu harðparketi á gólfi, útgengt í afgirtan og skjólsælan suðurgarð með timbur verönd. Eldhús með fallegri innréttingu. Kork-flísar á gólfi. Efrihæð: 3 rúmgóð svefnherbergi með parket á gólfum og fataskápar í öllum herbergjum. Baðherbergi var allt endurnýjað nýlega. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með innbyggðum tækjum, aðskilin með gleri. Baðkar og falleg innrétting í kringum 2 handlaugar með speglaskáp yfir. Upphengt salerni með innbyggðum sápuskammtara. Í rislofti er gott rými sem nýtist i dag sem skrifstofa. Velux veltigluggar á efri hæð eru endurnýaðir. Stór afgirt suðurverönd og grasblettur þar fyrir framan. Fyrir framan eignina er hellulagt. Sérgeymsla fyrir framan eignina.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat