Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Bjarklind Þór Olsen
Vista
svg

175

svg

143  Skoðendur

svg

Skráð  12. jún. 2025

fjölbýlishús

Akurhvarf 3

203 Kópavogur

79.900.000 kr.

758.784 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2273110

Fasteignamat

73.350.000 kr.

Brunabótamat

60.890.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
105,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 18. júní 2025 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Akurhvarf 3, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 02 01 03. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. júní 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Borgir  fasteignasala kynnir eignina Akurhvarf 3, 203 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 227-3110 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Akurhvarf 3 er skráð sem 3ja herbergja íbúð. Birt stærð 105.3 fm.

Nánari upplýsingar veita:
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, tölvupóstur Bjarklind@borgir.is og
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is 


Nánari lýsing eignar:
Falleg, björt og vel skipulögð 105,3 fm 3ja herbergja íbúð ásamt sér merktu bílastæði í lokaðri bílageymslu á 1.hæð í góðu lyftuhúsi.
Íbúðin skiptist niður í anddyri, tvö svefnherbergi, stofu, borðstofu, þvottahús, geymslu og stæði í bílageymslu.

Anddyri er með góðum fataskáp.. Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Björt, stór stofa og borðstofa með útgengt á góðar suðvestursvalir. Eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, nýleg AEG eldunartæki, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur. Inn af eldhúsi er stórt þvottahús, með vask og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með fallegri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtuklefa. Í kjallara er rúmgóð sér geymsla (8,1fm), sér merkt stæði í lokaðri bílageymslu og einnig hjóla- og vagnageymsla. Gólfefni er gegnheilt flæðandi parket nema flísar á baðherbergi, forstofu og eldhúsi.

Eldhús og tæki voru endurnýjuð 2017-2018.
Eignin er mjög vel staðsett, en stutt er í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu, matvöruverslun, skóla, leikskóla og íþróttamiðstöðina Kórinn. 
Húsið er að mestu klætt að utan og er sameign mjög snyrtileg og á sameiginlegri lóð eru leiktæki. 

Bílastæði eru malbikuð og göngustígar hellulagðir. Garðurinn er tyrfður. Gott aðgengi er að bílageymslu.

Húsgjöld íbúðar eru 35.991 kr. en þá er allur almennur rekstur húsfélagsins innifalinn sem og allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, þrif sameignar og sorpgeymslu og húseigendatrygging. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. sep. 2020
45.450.000 kr.
49.000.000 kr.
105.3 m²
465.337 kr.
17. nóv. 2017
33.800.000 kr.
40.400.000 kr.
105.3 m²
383.666 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone