Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1986
115,6 m²
5 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Opið hús: 18. júní 2025
kl. 17:15
til 17:45
Opið hús: Seilugrandi 5, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 08 04 03. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. júní 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.
Lýsing
Borg fasteignasala kynnir í einkasölu: Rúmgóð og björt 115,6 fermetra fjögra til fimm herbergja íbúð á tveimur hæðum, efstu hæð og risi, á þessum vinsæla stað í Vesturbænum. Tvö svefnherbergi, bað og hol á efri hæð og eitt herbergi, eldhús, baðherbergi og stofa á neðri hæð ásamt skjólgóðum útsýnissvölum. Efri hæð er mikið undir súð og er gólfflötur þess vegna stærri en skráðir fermetrar segja til um. Stæði í bílageymslu fylgir ásamt 5,6 fermetra geymslu í kjallara. Mikið útsýni, birta og góð nýting einkennir íbúðina.
Neðri hæð. Gengið er inn í parketlagðan gang með fataskáp. Úr gangi er gengið í rúmgott svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi. Gangurinn er opinn til stofu. Stofan er björt. Gott útsýni. Parket á gólfi. Svaladyr eru úr stofu, en svalir eru stórar og skjólgóðar.
Eldhús er stórt með góðri viðarinnréttingu. Gott borðpláss er í eldhúsinu og mikil birta frá stórum gluggum þar sem er gott útsýni. Baðherbergi er rúmgott með fallegri innréttingu, flísalögðu gólfi og veggjum. Baðkar.
Efri hæð. Úr stofu er hringstigi upp á rishæðina. Komið er í hol sem nýtist sem vinnuaðstaða eða mögulega sjónvarpsrými. Stórt herbergi með tveimur þakgluggum og stórum gluggum í öðrum enda rishæðarinnar. Í hinum enda er snyrting með flísum á gólfi og rúmgott herbergi með þakglugga. Parket er á gólfum í holi og herbergjum.
Sameign hússins var endurnýjuð að mestu fyrir nokkrum árum og lítur vel út. Fyrir nokkrum árum var húsið var sprunguviðgert og málað. Á jarðhæð er 5,6 fermetra sérgeymsla, rúmgóð hjólageymsla og gott þvottahús með þurrkaðstöðu.
Stæði í bílastæðahúsi fylgir eigninni.
Nánari upplýsingar veitir Börkur Hrafnsson , í síma 8924944, tölvupóstur borkur@fastborg.is.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. des. 2016
42.900.000 kr.
50.200.000 kr.
123.2 m²
407.468 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025