ÍBÚÐ 102 - SVEINN EYLAND LÖGG.FASTEIGNASALI Á STAÐNUM.
Lýsing
Um er að ræða snyrtilega og vel skipulagða tveggja herbergja 57.9 m2 íbúð á jarðhæð að Ljósulind 12, í þessu vinsæla hverfi miðsvæðis í Kópavogi.
Með íbúð er sér verönd (sérafnotaflötur) ca. 30 fm til suð-vesturs.
Sérgeymsla á jarðhæð sem er 4,8 fermetrar að stærð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla þjónustu. Stutt er í stofnbrautir.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 53.1 fm merkt 02-01-02 og geymsla er 4.8 fm merkt 02-01-03, samtals 57.9 m2 að stærð.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, sérgeymslu og sér verönd út af stofu.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa með innbyggðum fataskáp.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými með útgengi á ca. 30 fm suður verönd sem er afgirt og skjólgóð.
Eldhús er vel skipulagt með snyrtilegri innréttingu, efri og neðri skápar og er plata á vegg milli skápa, steinn er í borðplötu í eldhúsi.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og glugga til suðurs út á verönd.
Baðherbergi er snyrtilegt og vel skipulagt með flísum á gólfum og veggjum, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, vegghengt salerni og innfelldur vaskur í innréttingu sem er flísalögð, skápar á vegg, handklæðaofn, tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Sérgeymsla á jarðhæð.
Gólfefni: Eikarparket og flísar á gólfum.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat