Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Tryggvi Guðmundsson
Guðmundur Óli Tryggvason
Vista
parhús

Hrauntunga 1

400 Ísafjörður

67.800.000 kr.

348.228 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2336516

Fasteignamat

7.260.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
194,7 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Hrauntunga 1 Ísafirði - Nýbygging - Fjögurra herbergja parhúsaíbúð á einni hæð með innbyggðum bílskúr í botnlangagötu í rólegu hverfi. Húsið er nú í byggingu og er áætlað að því verði skilað fullbúinni að utanverðu skv. skilalýsingu þann 15. mars 2025.
Eignin verður skv. grunnteikningu á einni hæð með þremur svefnherbergjum, stofu/borðstofu, tveimur baðherbergjum, anddyri og þvotta- og geymslurými.
Gert er ráð fyrir að þvottur/geymsla geti verið bæði í bílgeymslu og einnig við enda gangs í íbúðarhluta.

Húsið er afhent á byggingastigi 2 auk nokkurra liða á byggingastigi 3.
Byggingin verður afhent frágengin að utan að öllu leyti. 
Lóð verður grófjöfnuð með malarlagi á bílastæðum, að minnsta kosti verða tvö bílastæði við hverja íbúð.

Hægt er að semja við seljanda/verktaka um frekari frágang eignar að innanverðu. 

Hafið samband við Guðmund Óla lögg. fasteignasala upp á nánari upplýsingar og gögn - oli@fsv.is s. 8208284

Skilalýsing:
Húsið er afhent á byggingastigi 2 auk eftirtalinna liða á byggingastigi 3: liður 4.3.7 öll varmaeinangrun
og rakavörn er fullgerð, frágengin, klædd af og loftræst. Liður 4.3.9 Byggingin skal að öllu leyti vera
frágengin að utan.
Um er að nýbyggingu parhúss við Hrauntungu 1 og 3 á Tunguskeiði. Íbúðirnar eru á einni hæð með
þremur svefnherbergjum, stofu/borðstofu, tveimur baðherbergjum, anddyri og þvotta- og geymslurými.
Gert er ráð fyrir að þvottur/geymsla geti verið bæði í bílgeymslu og einnig við enda gangs í íbúðarhluta.
Burðarvirki
Byggingin hvílir á staðsteyptum sökklum, einangruðum að utan með 100 mm plasteinangrun og múrað
yfir. Húsið er byggt út timbri (veggir og þak). Veggur á milli íbúða er staðsteyptur EI60. Gólfplata á
þjöppuðu malarlagi er staðsteypt, 120 mm þykk. Einangrað er undir gólfplötu með 125 mm
plasteinangrun (24 kg/m3). Berandi útveggir eru byggðir úr 45x145 mm c/c600 mm timburgrind fylltir
með 150 mm steinullareinangrun. Timburgrind klædd að utan með 9 mm krossvið og álsmábáru á 34
mm lágréttum lektum. Þak er byggt úr 50x245 mm timbri c/c 600 mm borða klæðningu. Þakið er klætt
öndunardúk (SIGA Majcoat 190) ásamt lektum. Þak verður klætt með aluzink bárustáli. Að innan verður
þak einangrað og klætt með rakavarnarlagi. 45x45 mm lagnagrind úr timbri.
Gluggar, hurðir og gler
Gluggar, ál-timburgluggar, settir í eftir á. Gler í gluggum er þrefalt einangrunargler, a.m.k. K-gler og skulu
uppfylla kröfu um einangrunargildi. Hert gler er í gólfsíðum gluggum og hurðum. Björgunarop eru þar
sem þarf og stærð þeirra samkvæmt grein 9.5.5. í byggingarreglugerð. (sjá teikningu). Innanmál útihurða
er að minnsta kosti 900 mm, annara dyra a.m.k. 800 mm ljósop.
Lagnir
Gólfhitakerfi er í öllum rýmum. Gólfniðurföll eru í öllum votrýmum. Frárennslis- og drenlagnir tengjast
frárennsliskerfi Ísafjarðarbæjar. Húsið er hitað með gólfhitakerfi sem tengist fjarvarmaveitu OV og
neysluvatn tengist vatnsveitukerfi Ísafjarðarbæjar.
Raflagnir
Aðaltafla full kláruð
Öryggi og brunahönnun
Bílgeymsla/geymsla er aðskilin með EI-60 veggjum. Eldvarnarhurð EICS-30 er á milli
bílgeymslu/geymslu og íbúðar. Þak á milli bílgeymsla skal vera ERI60 og að minnsta kosti 1.2 metra út
frá steypum millivegg skv. gr. 974 í byggingareglugerð. Loftaklæðning í bilgeymslu er í flokki 1.
Lóðafrágangur
Lóð verður grófjöfnuð með malarlagi á bílastæðum. Unnið skal með aðlögun lóðar að næstu lóðum í
samvinnu með aðliggjandi lóðarhöfum. Tryggja skal að yfirborðsvatn renni frá húsiðnu sbr. Gr. 10.5.2 í
byggingarreglugerð. Að minnst kosti verða tvö bílastæði við hverja íbúð.




 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Fasteignasala Vestfjarða

Fasteignasala Vestfjarða

Hafnarstræti 19, 400 Ísafirði
phone
Fasteignasala Vestfjarða

Fasteignasala Vestfjarða

Hafnarstræti 19, 400 Ísafirði
phone