Opið hús: Tangagata 20, 400 Ísafjörður. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 8. júlí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Aðalhæð:
Forstofa er með fatahengi. Þaðan er gengið niður í kjallara.
Borðstofan og setustofan eru samliggjandi í björtu rými með parketi á gólfi. Setustofan er einkar notaleg með innbyggðum hillum.
Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu með flísum milli efri efri og neðri skápa og flísalagt gólf. Þaðan er útgengt út á verönd í suður með skjólveggjum.
Hjónaherbergi er á aðalhæð með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergið er nýlega standsett, flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa, frístandandi baðkari, handklæðaofni og fallegri innréttingu.
Rishæð:
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi, bæði nokkuð undir súð, en nýtast betur en birt stærð risins segir. Geymslurými undir súð
Kjallari:
Hol með parketi á gólfi og fataskápum. Geymslurými undir stiga
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi og góðum gluggum.
Stórt svefnherbergi með parketi á gólfi og fatahengi.
Þvottahús er mjög rúmgott með góðu geymsluplássi og innréttingu.
Lóðin:
Falleg timburverönd með skjólveggjum er á baklóð. Góður geymsluskúr er á lóðinni við hlið hússins.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
---------------------------------------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat