OPIÐ HÚS AÐ HÁBERGI 3, 111 REYKJAVÍK, MIÐVIKUDAGINN 18. JÚNÍ FRÁ KL. 17:15 - 17:45. ÍBÚÐ 02-01. ALLIR VELKOMNIR!
Lýsing
Mjög góð og vel skipulögð 3ja herbergja endaíbúð á 2.hæð með sérinngangi af svölum við Háberg 3 í Breiðholti. Eignin er í snyrtilegu húsi sem er klætt að utan á göflum og á norðurhlið. Birt stærð íbúðar: íbúðin sjálf er 84,7 m2 (merkt 02-01) og geymslan er 6,3 m2 (merkt 02-05), samtals 91,0 m2. Baðherbergið var endurnýjað árið 2021 - húsið var múrviðgert og málað að utan árið 2024. Sumarið 2019 voru settar svalalokanir á allt húsið sem eru opnanlegar.
Eignaskiptasamningur: Eignin er þriggja herbergja íbúð á 2. hæð hússins (0201). Birt stærð íbúðar er 84,7 fm. Eigninni fylgir 6,3 fm geymsla á 2. hæð (0205). Eigninni fylgir bílskúrsréttur á lóð.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu og frá forstofu tekur við gangur. Á vinstri hönd frá forstofu er svefnherbergi með fataskáp. Á hægri hönd frá forstofu er eldhús með hvítri innréttingu, borðkrókur og gluggi. Svefnherbergisgangur, fataskápur. Rúmgott hjónaherbergi með fastaskáp. Nýlega endurnýjað baðherbergi (árið 2021) með flísum á gólfi, Walk-in sturta, handklæðaofn, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með útgangi út á rúmgóðar svalir með svalalokunum og þaðan sérlega fallegu útsýni í austur. Geymsla er við hlið íbúðar. Í sameign hefur íbúðin aðgang að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu ásamt stórri sameiginlegri geymslu. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum.
Um er að ræða góða og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð við Háberg í Reykjavík. Virkilega fallegt útsýni er úr íbúðinni. Eignin er vel staðsett í efra Breiðholti, stutt er í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og er önnur helsta þjónusta til staðar í göngufæri, eins og heilsugæsla, bókasafn, tónlistarskóli, stórmarkaðir, sundlaug, íþróttasvæði Leiknis, líkamsræktarstöð ofl.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat