Upplýsingar
Byggt 1903
50,5 m²
2 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sérinngangur
Opið hús: 18. júní 2025
kl. 18:00
til 18:45
Opið hús: Bergstaðastræti 45, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. júní 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:45.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög falleg og mikið endurnýjuð 50,5 fm 2ja herbergja íbúð í kjallara í litlu fjölbýlishúsi við Bergstaðastræti 45. Um er að ræða eitt af þessum fallegu gömlu timburhúsum í Þingholtunum. Sér inngangur er í íbúðina. Íbúðin var mikið standsett árið 2015 m.a. eldhús, baðherbergi og gólfefni. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/eldhús, herbergi og baðherbergi. Geymsla er undir stiga. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara. Fimm íbúðir eru í húsinu við Bergstaðastræti 45 og er öll eignin til sölu. Eignin selst í hlutum eða í einu lagi.NÁNARI UPPL. VEITIR: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali f. 861 8611, magnea@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn um sér inngang í forstofu.
Stofa/eldhús: Samliggjandi stofa og eldhús. Falleg uppgerð innrétting er í eldhúsi. Rúmgott og bjart rými með stórum gluggum.
Herbergi: Rúmgott herbergi.
Baðherbergi: Sturta er á baðherbergi ("walk in sturta"). Gólf er flísalagt.
Gólf í stofu/eldhúsi og herbergi eru lögð fallegum gólfborðum.
Fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 49.450.000.
Framkvæmdir innanhúss: Íbúðin var mikið standsett árið 2015 m.a. eldhús, baðherbergi og gólfefni. Raflagnir í íbúðinni hafa einnig verið endurnýjaðar svo og rafmagnstafla.
Framkvæmdir utanhúss: Járn utan á húsi og þaki var endurnýjað á s.l. 10 árum (verið er að setja nýtt járn á síðasta hluta hússins núna). Frárennslislangir hafa verið endurnýjaðar en það var gert í tvennu lagi. Árið 2010 voru frárennslislagnir undir húsi endurnýjaðar og árið 2023 voru frárennslislagnir frá húsi og út í götu endurnýjaðar. Gler (í gluggum) í íbúðinni hefur verið endurnýjað að miklu leyti.
Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur. Örstutt í verslanir og helstu þjónustu. Útivistarsvæði í næsta nágrenni.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook