Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1903
67,8 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sérinngangur
Opið hús: 18. júní 2025
kl. 18:00
til 18:45
Opið hús: Bergstaðastræti 45, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. júní 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:45.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög falleg og mikið endurnýjuð 67,8 fm 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýlishúsi við Bergstaðastræti 45. Um er að ræða eitt af þessum fallegu gömlu timburhúsum í Þingholtunum. Sér inngangur er í íbúðina. Íbúðin var mikið standsett árið 2013 m.a. eldhús og baðherbergi. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/eldhús, herbergi og baðherbergi. Sér geymsla í kjallara og einnig undir útitröppum. Sameiginlegt þvottahs er í kjallara (en einnig er lögn fyrir þvottavél á baðherbergi). Fimm íbúðir eru í húsinu við Bergstaðastræti 45 og er öll eignin til sölu. Eignin selst í hlutum eða í einu lagi.NÁNARI UPPL. VEITIR: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, magnea@eignamidlun.is
,
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn um sér inngang í forstofu með fatahengi.
Hol: Frá forstofu er komið í hol.
Stofa/eldhús: Samliggjandi stofa og eldhús. Falleg uppgerð innrétting er í eldhúsi. Rúmgott og bjart rými með stórum gluggum.
Herbergi: Rúmgott dúklagt herbergi með skápum.
Baðherbergi: Baðkar með sturtu í. Gólf er flotað og lakkað. Gluggi er á baðherbergi. Lögn fyrir þvottavél.
Gólf í forstofu, holi og stofu/eldhúsi eru lögð fallegum gólfborðum.
Fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 64.050.000.
Framkvæmdir innanhúss: Íbúðin var mikið standsett árið 2013 m.a. eldhús og baðherbergi. Raflagnir í íbúðinni hafa verið endurnýjaðar svo og rafmagnstafla.
Framkvæmdir utanhúss: Járn utan á húsi og þaki var endurnýjað á s.l. 10 árum (verið er að setja nýtt járn á síðasta hluta hússins núna). Frárennslislangir hafa verið endurnýjaðar en það var gert í tvennu lagi. Árið 2010 voru frárennslislagnir undir húsi endurnýjaðar og árið 2023 voru frárennslislagnir frá húsi og út í götu endurnýjaðar. Gluggar/gler í íbúðinni hefur verið endurnýjað.
Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur. Örstutt í verslanir og helstu þjónustu. Útivistarsvæði í næsta nágrenni.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. ágú. 2011
15.650.000 kr.
12.500.000 kr.
67.8 m²
184.366 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025