Lýsing
**** Bókið einkaskoðun hjá sigridur.lind@heimili.is / 8994703 ***
Nánari lýsing neðri hæð:
Forstofa: Rúmgóð, flísar á gólfi, gott skápapláss. Hol: Rúmgott og bjart, útgengi út í garð og á nýtt pallasvæði með heitum potti.
Svefnherbergi I: Gluggar á tveim hliðum, parket á gólfi. Svefnherbergi II: Gluggar á tveim hliðum, parket á gólfi.
Þvottahús: Rúmgótt og bjart. Þarfnast endurbóta. Innaf þvottahúsi er kyndiklefi/geymsla. Baðherbergi: Steyptur sturtubotn, létt innrétting undir handlaug, flísar á gólfi og veggjum.
Nánari lýsing efri hæð:
Hol: Bjart og rúmgott, útgengi út á skjólgóðar og sólríkar suður svalir. Gott útsýni. Stigagangur: Steyptur stigi er á milli hæða. Falleg gluggasetning beggja vegna. Mikil lofthæð.
Eldhús: Bjart og rúmgott með tveimur gluggum. Glæsileg nýleg hvít innrétting, gott skápapláss. Tveir innbyggðir ísskápar og tveir veggofnar. Innbyggð uppþvottavél. Spanhelluborð. Búr: Inn af eldhúsi er gott búr, stæði fyrir þvottavél.
Borðstofa/stofa: Er opið við eldhús. Bjart og rúmgott fjölskyldurými. Stórir gluggar, gott útsýni. Kamína.
Hjónaherbergi III: Rúmgott og bjart, parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi með góðu skápaplássi. Svefnherbergi IV, V, VI: Rúmgóð og björt, parket á gólfum.
Baðherbergi: Eldri innrétting, flísar á gólfi og veggjum, Steyptur sturtuklefi, baðkar. Opnanlegur gluggi.
Bílskúr: heitt og kalt vatn, rafmagn. Hleðslustöð.
Endurbætur og viðhald ( ath listinn er ekki tæmandi, nánari upplýsingar hjá söluaðila)
2018 Opnað á milli eldhúss og borðstofu. Eldhús endurnýjað. Ný innrétting og tæki. Gólf í svefnherbergisálmu flotuð. Rafmagn yfirfarið, innihurðir endurnýjaðar.
2019 Þak háþrýstiþvegið og Mónósílan borið á. Blöndunartæki á baðherbergjum endurnýjuð.
2020: Húsið í heild háþrýstiþvegið. Umfangsmiklar sprunguviðgerði á útveggjum. Vatnsbretti við glugga endurnýjuð. Nýjar þakrennur. Húsið grunnað og málað.
2021: Garður hreinsaður og þökulagður. Jarðvegsdúkur og möl sett meðfram bílskúr.
2022: Steyptur upp veggur sem afmarkar lóð kringum húsið. Pallur smíðaður og heitum potti komið fyrir.
Hér er um að ræða afar gott og vel skipulagt fjölskylduhús þar sem allir fá sitt rými. Miðrými, stofa, eldhús og borðstofa er bjart og rúmgott með glæsilegu útsýni til sjávar fullkomið til samveru með fjölskyldunni. Fasteignamat 2026 kr 115.950.000.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali. sigridur.lind@heimili.is / 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.