Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1976
svg
353,4 m²
svg
9 herb.
svg
2 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 24. júní 2025 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Arkarholt 6, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. júní 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 24.jún frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 353,4 m2 einbýlishús með bílskúr ásamt auka íbúð í kjallara við Arkarholt 6. Birt stærð eignar er 353,4 m2, en þar af aðal hæðin 134,3 m2, bílskúr 44,9 m2, neðri hæð 134,3 m2 þarf af er íbúð 65 m2 og geymsla undir bílskúr 39,9 m2. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, þvottahús, búr, gestasalerni/geymslu, baðherbergi, 5 svefnherbergi, stofu, borðstofu og bílskúr. Auka íbúðin skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, eldhús, stofu og baðherbergi. Innaf auka íbúð er svo rými sem er nýtt sem geymsla. Undir bílskúr er geymsla í kjallara. Verönd og fallegur garður sem snýr í suður-, vestur- og norðurátt. Timburverönd með heitum potti og geymsluskúr í bakgarði. Húsið er vel staðsett í vinsælu og grónu hverfi í Mosfellsbæ, stutt frá skóla, leikskóla, verslun og allri helstu þjónustu. 

Skv. upplýsingum frá seljanda hafa verðið gerðar endurbætur á eigninni. Árið 2019 var sett nýtt járn á þak. Árið 2021 voru settir nýjir gluggar á efri hæð hússins, og skipt um hluta af hurðum. Árið 2015 var baðherbergi endurnýjað. Árið 2024 var eldhús innrétting endurnýjuð, og nýr ofn. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing: 
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhús er með fallegri innréttingu og borðplötu. Í innréttingu er ofn, helluborð, vifta og niðurfelldur vaskur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Inn af eldhúsi er þvottahús og búr
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu. Í innréttingu er gert ráð fyrir uppþvottavél, þvottavél og þurrkara. Úr þvottahús er útgengt út á lóð.
Stofa og borðstofa er í opnu björtu rými með flísum á gólfi. Fallegur arinn er í rýminu.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi. Er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi. Úr sjónvarpsherbergi er gengið út á timburverönd í bakgarði.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi
Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi. 
Svefnherbergi nr. 5 er með flísum á gólfi. Er inn af forstofu. 
​​​​Baðherbergi er flísalagt.. Á baði er fín innrétting með skolvask, handklæðaofn og sturtu. Auðvelt væri að bæta við baðkari þar sem lagnir fyrir það eru til staðar.
Gestasnyrting er með flísum á gólfi. Er í dag nýtt sem geymsla. Búið er að taka niður vask og salernið en auðvelt er að breyta til baka.

Bílskúr er rúmgóður og með steyptu gólfi. Úr bílskúr er útgengt að aftanverðu út í bakgarð. Undir bílskúr er svo kjallari sem er nýttur sem geymsla.

Auka íbúð í kjallara er með sérinngangi. Í íbúð eru 2 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Inn af íbúð er geymsla. Íbúðin er með flísum á gólfi. Gert er ráð fyrir að hægt sé að opna frá efri hæð og niður í íbúð með hringstiga.

Lóð: Fyrir framan hús er hellulögð verönd og fallegur garður. Hellulögð gönguleið meðfram húsi og yfir í bakgarð. Í bakgarði er timburverönd með heitum potti og úti geymslu. Bílaplan er ófrágengið.

Verð kr. 169.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ