Opið hús: Gerplustræti 31, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 30. júní 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 112,3 m2, 4ra herbergja endaíbúð á 3.hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Gerplustræti 31 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 112,3 m2 þar af íbúð 101,4 m2 og geymsla 10,9. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, þvottaherbergi, baðherbergi og geymslu. Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Svalir í vesturátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning, rétt við Helgafellsskóla. Stutt í almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í vesturátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með fallegri innréttingu. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, helluborð, vifta og vaskur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott herbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er rúmgott með góðri innréttingu, walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í kjallara. Er skráð 10,9 m2.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu merkt B26 fylgir eigninni.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 81.000.000,-
Verð kr. 85.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.