Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Bjarklind Þór Olsen
Vista
svg

52

svg

48  Skoðendur

svg

Skráð  27. jún. 2025

fjölbýlishús

Njálsgata 59

101 Reykjavík

79.000.000 kr.

769.231 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2008025

Fasteignamat

72.650.000 kr.

Brunabótamat

43.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1960
svg
102,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Borgir s. 588-2030 kynna:
4 herberja íbúð á 3ju hæð í 4. hæða blokk á Njálsgötunni nálægt horni við Barónsstíg.
3 svefnherbergi, góð stofa og rúmgott eldhús.
Verið er að endurnýja húsið að utan á kostnað seljanda.


Lýsing: 
Komið er í gott hol með skápum.
Frá holi er gegnt í gott eldhús með eldri innréttingum og borðkrók. Gluggi í suður.
Við hliðina á eldhúsi er svo björt og góð stofa sem snýr í suður með frönskum svölum ( Hurð út með rimlum fyrir að utan).
(Kannski möguleiki að bæta við herbergi með því að færa eldhúsið inn í stofu).
Hol opnast svo  líka í svefnálmu þar sem eru 3 svefnherbergi og baðherbergi.
Fyrst er hjónaherbergi með skápum og þar gegnt út á norður svalir. Dúkur á gólfi.
Síðan koma 2 minni svefnherbergi með gluggum í norður og þar korkur á gólfi.
Gegnt svefnherbergjum er svo flísalagt baðherbergi með baðkari og innréttingu.
Gólfefni eru eldra parket, korkur og dúkur.

Stigagangur er teppalagður.
Sér geymsla í kjallara með hillum (innst á gangi).
Sameiginlegt þvottahús í kjallara eitt fyrir 4 íbúðir á vestur hlið og hitt fyrir austur íbúðir.
Útgegnt í aflokaðan bakgarð.

Lagnir undir húsinu fóðraðar fyrir ca ári.
Framkvæmdir í gangi við að endurnýja húsið að utan að hluta.
Skýrsla Verkfræðistofu um yfirstandandi framkvæmdir liggur fyrir en þeim á að ljúka í September.
Seljendur hafa þegar greitt hluta framkvæmdakostnaðar sem er hátt í 5 miljónir fyrir þessa íbúð.

Nánari upplýsingar veitir Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. nóv. 2015
30.400.000 kr.
40.000.000 kr.
102.7 m²
389.484 kr.
25. sep. 2012
23.250.000 kr.
24.900.000 kr.
102.7 m²
242.454 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone