Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Vista
svg

45

svg

40  Skoðendur

svg

Skráð  27. jún. 2025

fjölbýlishús

Súðarvogur 11

104 Reykjavík

82.500.000 kr.

922.819 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2518130

Fasteignamat

73.400.000 kr.

Brunabótamat

62.810.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
89,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 1. júlí 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Súðarvogur 11, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 04. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 1. júlí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Nýtt á skrá! Opið hús - Súðarvogur 11 Reykjavík - þriðjudaginn 1. júlí klukkan 17:00 - 17:30.

--- Glæsileg útsýnisíbúð við Voginn þar sem horft er yfir Elliðaárdalinn, Geirsnef, út á sundin og til fjalla ---

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og bjarta 89,4 fermetra 3ja herbergja útsýnisíbúð með svölum í nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu við Súðarvog 11 í Reykjavík. Sérstæði í lokuðum bílakjallara þar sem búið er að setja upp rafhleðslustöð. Góð 7,2 fermetra geymsla er staðsett í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, geymslu og stæði í bílakjallara. Frágangur á íbúðinni er virkilega góður þar sem má m.a. nefna að gólfhiti er í allri íbúðinni, vandaðar Voke 3 innréttingar sem ná upp í loft, aukin lofthæð (263 cm) og stórir gluggar sem ná sömuleiðis upp í loft. Mikið útsýni út á sundin og til fjalla (m.a. Esjuna, Móskarðshnjúka og víðar).

Aðkoma að húsinu er góð um hellulagða stétt með snjóbræðslu. Gönguleiðir um fallegan inngarð milli húsana með leiksvæði og blómakerum. Rafmagnsopnun er á hurðum í sameign (dropakerfi). Myndavéladyrasími er í íbúðum.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og skápum.
Gangur: Með harðparketi á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum til tveggja átta með afar fallegu útsýni út á sundin og til fjalla. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús.
Svalir: Snúa til suðausturs og með afar fallegu útsýni líkt og fyrr greinir.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri og vandaðri Voke 3 eldhúsinnréttingu með eyju. Innbyggður kæliskápur með frysti frá AEG og innbyggð uppþvottavél frá AEG. Vandaður Electrolux bakaraofn með sjálfhreinsibúnaði ásamt Electrolux spanhelluborði.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun. Góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara (upphækun í innréttingu).
Svefnherbergi I: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til austurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til austurs.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 7,2 fermetrar að stærð.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Rafhleðslukerfi uppsett í bílakjallara. 

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. feb. 2023
7.160.000 kr.
78.900.000 kr.
89.4 m²
882.550 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur