Lýsing
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta og opna 63,8 fm 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð, gengið upp hálfan stigapall, húsið stendur á rúmgóðri lóð, og eru næg bílastæði við húsið. Húsið var múrviðgert og málað að utan ásamt því að þak var málað 2019, ásamt því að þakkantur var lagaður og málaður og farið yfir þakrennur. Einnig var skipt um teppi í sameign og sameignin máluð árið 2021.
Skemmtileg staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Íbúðin er 58 fm (merkt 01-0103) og geymsla er 5,8 fm (merkt 01-0011) samtals er eignin skráð 63,8 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flísar á gólfi og skápar.
Stofa er með parketi á gólfi.
Eldhús er með parketi á gólfi, viðarinnrétting með hvítum neðri skápum og svörtum efri skápum.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi, góðum skápum og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Baðherbergi er með dúk á gólfi, rennihurð, baðkar með sturtu, wc, skúffur undir vask og speglaskápur fyrir ofan vask. Hægt er að tengja fyrir þvottavél á baðherherbergi.
Þvottahús er í sameign og þar er hver með sína þvottavél svo er líka þurrkherbergi.
Geymsla er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.