Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Vista
svg

52

svg

35  Skoðendur

svg

Skráð  28. jún. 2025

fjölbýlishús

Kleppsvegur 58

104 Reykjavík

64.900.000 kr.

841.764 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2017321

Fasteignamat

52.500.000 kr.

Brunabótamat

37.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1958
svg
77,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 2. júlí 2025 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Kleppsvegur 58, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 2. júlí 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

LIND Fasteignasala, Arinbjörn Marinósson lgfs & Andri Freyr Halldórsson lgfs kynna til sölu:
Fallega & vel skipulagða 3 herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við Kleppsveg, Laugardal í Reykjavík.

 
Skráð stærð eignar skv. FMR er 77.1 fm, skiptist í íbuð 71.0 fm og geymsla 6.1 fm. Íbúðin er merkt 02-02. 
*Fasteignamat skv. fmr fyrir árið 2026 er 57.600.000 kr.* 

*Frábær fyrstu kaup.
*Nýlega uppgert eldhús, nýjar innréttingar & tæki.
*Ný gólfefni í íbúðinni, nema þvottahús og baðherbergi.


Eignin skiptist í:
Forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús og geymsla staðsett í sameign.

Nánari lýsing eignar:
Anddyri: parket á gólfi.
Eldhús: með nýrri innréttingu, helluborði, bakaraofni, innbyggðum háf, innbyggð uppþvottavél og stæði fyrir ísskáp í innréttingu. Parket á gólfi. 
Stofa: parketi á gólfi, bjartir gluggar í suður.
Baðherbergi: með viðarinnréttingu, baðkar með sturtu aðstöðu, flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: með parketi á gólfi og nýlegum rúmgóðum fataskápum. Útgengt út á suður svalir. 
Svefnherbergi: með parketi á gólfi og fataskáp.
Geymsla: 6.1 fm, staðsett á sameign.
Þvottahús: er inn af eldhúsi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Dúkur á gólfi.

Kleppsvegur 58 er á frábærum stað í vinsælu hverfi Laugardalnum í Reykjavík, þar sem stutt er út á stofnbrautir og í alla helstu þjónustu, eins og t.d. skóla, leikskóla, verslanir, sund og líkamsrækt. Vinsæl útivistarsvæði eru í næsta nágrenni.

Allar nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 762-6162 eða andri@fastlind.is
Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, í síma 8226821 eða arinbjorn@fastlind.is

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. 
Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN. 


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. sep. 2020
33.700.000 kr.
37.900.000 kr.
77.1 m²
491.569 kr.
25. sep. 2015
20.150.000 kr.
24.000.000 kr.
77.1 m²
311.284 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone