Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Vista
svg

442

svg

347  Skoðendur

svg

Skráð  30. jún. 2025

fjölbýlishús

Sóltún 5

105 Reykjavík

82.900.000 kr.

809.570 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2250490

Fasteignamat

79.250.000 kr.

Brunabótamat

56.360.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2000
svg
102,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Sóltún 5, íbúð 102, 105 Reykjavík

björt og rúmgóð þriggja herbergja íbúð á vinsælum stað í Túnunum. Íbúðin er á fyrstu hæð með hellulagðri suðurverönd. Eigninni fylgir sérstæði í bílakjallara og þrjár geymslur. Möguleiki er að opna rýmið enn frekar með því að sameina eldhús og stofu. Sameign er snyrtileg, lyfta er í húsinu, rafstýrðar hurðaopnanir eru í sameign og myndavéladyrasími.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 102,4 m², þar af er íbúðarrými 97,5 m² og sérgeymsla í kjallara 4,9 m².
Eign merkt 01-02, fastanúmer 225-0490 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er með viðarparketi á gólfi og ágætum fataskáp.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með viðarparketi á gólfi. Útgengt út á hellulagða verönd.
Eldhús er með L-laga innréttingu með uppþvottavél, ísskáp, helluborði, viftu og bakaraofni í vinnuhæð. Vaskur er með rafmagnskvörn og flísar eru á milli innréttinga. Gengið er bæði inn í stofu og borðstofu, veggur á milli þeirra er léttur án burðar, sem gefur möguleika á að opna eldhúsrýmið enn frekar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, vegghengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu með speglaskáp.
Svefnherbergi I er rúmgott með stórum fataskáp eftir heilum vegg og viðarparketi á gólfi.
Svefnherbergi II er einnig með fataskáp og viðarparketi á gólfi.
Þvottahús er með flísalögðu gólfi, ágætri aðstöðu fyrir þvottavél og stálvaski.
Geymsla I er innan íbúðar, nett rými sem nýtist vel sem lítil geymsla eða fataherbergi. Viðarparket á gólfi.
Geymsla II er staðsett í kjallara og er 4,9 m², skráð í uppgefna fermetratölu eignarinnar.
Geymsla III er einnig í kjallara, tæpir 5 m² en er utan skráðrar fermetrastærðar. Hún er staðsett í afmörkuðu sameignarrými sem hefur verið skipt niður í læstar sérgeymslur.
Sérbílastæði í bílakjallara fylgir eigninni. Rafmagnsstofnar hafa verið lagðir í bílakjallara, sem auðveldar uppsetningu á hleðslustöð fyrir rafbíla.

Byggingarlýsing:
Húsið
var byggt árið 2000 og er sjö hæða fjölbýlishús ásamt kjallara með lyftu. Útveggir hússins eru steyptir og klæddir. Sameign er snyrtileg með rafstýrðum hurðaopnunum og myndavéladyrasíma. Lyfta er í húsinu, sem nær frá bílakjallara upp á efstu hæð. Bílageymslan er snyrtileg, búið er að leggja rafmagnsstofna sem auðveldar uppsetningu á hleðslustöðvum fyrir rafbíla.

Lóð og aðkoma:
Húsið stendur á gróinni lóð með sameiginlegum bílastæðum auk bílageymslu og leiksvæði fyrir börn. Á jarðhæð er hjóla- og vagnageymsla næst lyftu, með sérútgangi. Í næsta nágrenni er fjölbreytt þjónusta, verslanir, skólar, leikskóli og íþróttastarf. Íbúðin er staðsett á vinsælum stað í Túnunum, nálægt Teigahverfi og miðborginni.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

img
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valný fasteignasala
Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
phone
img

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
phone

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær