Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðbjörg Heimisdóttir
Vista
einbýlishús

Reykjabraut 7

815 Þorlákshöfn

74.200.000 kr.

435.702 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2212640

Fasteignamat

58.500.000 kr.

Brunabótamat

73.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1963
svg
170,3 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 3. júlí 2025 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Reykjabraut 7, Þorlákshöfn.  Einstaklega vel staðsett og vel skipulagt einbýlishús með 4 svefnherbergjum og bílskúr.  Garðurinn er með 2 sólpöllum,  heitum potti og gróðurhúsi.  Á næstu lóð við húsið er skemmtilegur og vel búinn leikvöllur.
Húsið er laust til afhendingar !

**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 **


Eignin skiptist svo:  
* Flísalögð forstofa með stórum skáp
* Mjög rúmgott eldhús með innréttingu úr kirsuberjavið. Íssápur og uppþvottavél eru innfelld og fylgja. Flísaparket er á gólfi.
* 4 svefnherbergi með beyki plastparketi á gólfi. Skápar eru í öllum herbergjum.
* Rúmgóð stofa og hol með beyki plastparketi á gólfi. 
* Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítlakkaðri innréttingu með dökkri borðplötu og baði. Hiti er í gólfi.
* Þvottahús er inn af eldhúsi. Í þvottahúsi er góð innrétting með vinnuborði og vask og flísar á gólfi.  Utangengt er úr þvottahúsinu.
* Inn af þvottahúsi er geymsla með hillum og flísum á gólfi.  
* Bílskúr.  Bílskúrinn er einangraður og með rafmagni.  
* Bílaplan er með bundnu slitlagi.
 
** Garðurinn er uppgróinn og með 2 sólpöllum,  heitum potti og gróðurhúsi.  Gróðurhúsið er á öðrum sólpallinum;  álgrind með plexigleri.
70m2 sólpallur með heitum potti er á suðurhlið hússins.
Á norðurhlið hússins er 30m2 sólpallur.  Þar er tjörn með gosbrunn.

Í garðinum er leikkofi / útigeymsla.

Óklárað glerhýsi ca 12m2 í garði (hlið glerhýsisins liggur að bílskúrnum). 

*** Búið er að endurnýja hitaveitu og neysluvatnslagnir. Plastgluggar og útihurðar eru í öllu húsinu.

Húsið þarfnast spörslunar og málunar að utan. 

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitaveitarfélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is


 

img
Guðbjörg Heimisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Suðurlands
Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone
img

Guðbjörg Heimisdóttir

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. feb. 2023
50.650.000 kr.
62.000.000 kr.
170.3 m²
364.063 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Suðurlands

Fasteignasala Suðurlands

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
phone

Guðbjörg Heimisdóttir

Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn