Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1992
69,3 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Heldri borgarar
Opið hús: 5. júlí 2025
kl. 13:00
til 13:30
Opið hús: Sléttuvegur 15, 103 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 07. Eignin verður sýnd laugardaginn 5. júlí 2025 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
LIND fasteigansala kynnir bjarta og fallega tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í snyrtilegu lyftuhúsi við Sléttuveg 15 í Reykjavík. Íbúðir í húsinu eru ætlaðar 55 ára og eldri. Stofa og eldhús eru í opnu rými, gegnheilt parket með fiskibeinamynstri á gólfi. Útgengi úr stofu á rúmgóðar svalir með svalaskjóli. Fallegt útsýni til suðurs þar sem Kópavogskirkja og Keilir blasa við. Svefnherbergi er rúmgott með gegnheilu parketi á gólfi. Eldhús og baðherbergi voru uppgerð fyrir fáum árum. Myndavéladyrasími. Geymsla er við hlið íbúðarinnar. Húsið var múrviðgert og málað að utan 2023. Á sama tíma var skipt um glugga eftir þörfum og þak yfirfarið. Sameign er mjög snyrtileg. Nýtt teppi verður lagt á sameign í ágúst nk. sem seljandi greiðir fyrir.
Á jarðhæð hússins er líkamsræktaraðstaða fyrir íbúa með búningsklefum, heitum potti og gufu. Þar er einnig veislusalur og setustofa til afnota fyrir íbúa sem og hárgreiðslustofa og snyrtistofa. Húsvörður er starfandi í húsinu. Falleg eign á góðum stað í Fossvogi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu. Fallegar gönguleiðir allt í kring.
Íbúð 207:
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Hvít innrétting með viðarborðplötu, gegnheilt parket á gólfi.
Stofa: Opin og björt, gegnheilt parket á gólfi. Útgengi á rúmgóðar svalir með svalaskjóli. Fallegt útsýni til suðurs þar sem Keilir og Kópavogskirkja blasa við.
Svefnherbergi: Gegnheilt parket á gólfi, fataskápur.
Sérgeymsla (6,6 fm) fyrir framan íbúðina.
Lóð er sameiginleg og vel við haldið.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. jún. 2021
41.450.000 kr.
44.000.000 kr.
69.3 m²
634.921 kr.
7. mar. 2019
35.600.000 kr.
38.000.000 kr.
69.3 m²
548.341 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025