Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 97,3 m2, 3ja herbergja íbúð með fallegu útsýni á 3. hæð (efstu hæð) í fjölbýlishúsi við Þrastarhöfða 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 97,3 m2, þar af íbúð 92,5 m2 og geymsla 4,8 m2.
Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu innan íbúðar, hol, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Um er að ræða íbúð á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt er í Lágafellsskóla, leikskóla, Lágafellslaug og World Class, en auk þess er golfvöllur í næsta nágrenni.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með fatahengi og flísum á gólfi.
Hol er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með fallegu útsýni og parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í vesturátt með fallegu útsýni.
Eldhúsið er opið inn í stofuna, með eldhúsinnréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ísskápur/frystiskápur, bakaraofn, helluborð og háfur.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, handklæðaofni, vegghengdu salerni og sturtu.
Geymsla er innan íbúðar, með parketi á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar, með flísum á gólfi.
Sérgeymsla er í kjallara, skráð 4,8 m2.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er 74.700.000 kr.
Verð kr. 69.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.