Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Blöndubakki 12

109 Reykjavík

64.900.000 kr.

614.583 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2047532

Fasteignamat

57.300.000 kr.

Brunabótamat

49.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1971
svg
105,6 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Domusnova fasteignasala hefur fengið góða útsýnisíbúð að Blöndubakka 12 til einkasölu. Íbúðin er á efstu hæð með frábæru útsýni til vesturs úr stofu. Um er að ræða vel skipulagða 4ra herbergja íbúð sem er 105,6fm að stærð. Stutt er í leikskóla og skóla auk annarrar þjónustu s.s. Mjódd og Smáralind. 11fm aukaherbergi er í kjallara sem mögulegt er að leigja út þar sem sameiginlegt salerni er í kjallara. Fasteignamat næsta árs er 63.400.000kr.

Þegar inn er komið er opið rými, forstofa sem er opin inn í eldhús og stofu. Herbergjagangur með þremur herbergjum er vinstra megin inn af forstofu og snúa herbergin í austur. Baðherbergi er einnig við ganginn. Aukabaðherbergi inn af forstofu hefur verið breytt og er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Til hægri er opið rými stofu og eldhúss með útgengi á svalir og er þaðan gríðarlegt útsýni. Parket á herbergjum  er komið nokkuð til ára sinna.

Stofa og eldhús eru í einu rými er með flísum á gólfi, útgengt á svalir til vesturs, innrétting er kominn til ára sinna.
Hjónaherbergi er með parketi og góðum skápum, snýr til austurs.
Tvö ágæt barnaherbergi með parketi á gólfi og skápum snúa til austurs og er skápur í öðru þeirra.
Gangur og forstofa er með flísum á gólfi og í rými sem var gestasalerni er nú tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi er með ágætri innréttingu sem ekki er nýleg.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands samtals 105,6 m2. í kjallara sameignar er 11,0 m2 herbergi/geymsla með glugga með aðgangi að sameiginlegri snyrtingu. Einnig er 6,8 m2 sérgeymsla staðsett innan sameignar í kjallara. Sameiginlegt þvottahús og vagna- og hjólageymsla er í kjallara í sameign.

Húsið hefur fengið eftirfarandi viðhald síðustu ár (upplýsingar frá seljanda): 
2017 voru suðurhliðar klæddar og skipt um glugga þar sem þurfti, austurhlið endurmúruð og skipt um alla glugga, austurendi málaður.
2019 Vesturhlið viðgerð, skipt um gler í þessari íbúð (nema eldhúsglugga). Norðurhliðar viðgerðar, málað.
2021 skipt um krana í öllum stigagöngum (heit og kalt vatn).
2022 Skipt um þak.
2024 Klóaklagnir fóðraðar.
Leikskóli og grunnskóli eru í göngufæri og stutt í alla helstu þjónustu s.s. Mjódd og Smáralind.  

Til að fá söluyfirlit sent smellið hér

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    30. júl. 2013
    18.650.000 kr.
    23.800.000 kr.
    105.6 m²
    225.379 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone