Lýsing
Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og fataskáp.
Gangur, eldhús og borðkrókur í opnu rými með nýju vinyl parketi, vel með farinni eldhúsinnréttingu, eldavél og gott skápapláss.
Inn af eldhúsi er þvottahús með útgangi á norðurgafli út í garð. Þar er einnig köld búrgeymsla.
Stór stofa og borðstofa með parketi á gólfi, stórir gluggar, panill í lofti.
Baðherbergi með sturtuklefa, flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi með stórum fataskápum, parket á gólfi.
Annað herbergi með parketi á gólfi, fataskápur.
Þriðja herbergið með parketi og fataskáp.
Sérstæður bílskúr með steyptu gólfi, rafmagni og kartöflugeymslu, nýlegri bílskúrshurð og inngönguhurð.
Stór og fallegur gróinn garður. Sólpallur bak við hús.
Húsið er einangrað og klætt að utanverðu.
Framkvæmdasaga seljanda:
Skipt um þak, þakrennur og vindskeiðar 2009. Gert við glugga og sett í þá nýtt gler 2010. Sett Steni klæðning 2011 og einnig sett klæðning á steyptan hluta bílskúrs.
Smíðaður sólpallur ofan við hús 2012. Frárennslislagnir endurnýjaðar í lóð og baðherbergi 2013 og frá eldhúsi 2019
Sett nýtt salerni og settur upp sturtuklefi 2013. Flísalögn á baðherberbergi endurnýjuð.
Ný vatnslögn frá götu 2023. Allar hita- og ferskvatnslagnir endurnýjaðar 2024 og settur upp 200L hitakútur fyrir neysluvatn. Sett nýtt parket á gang, eldhús og borðstofu 2024. Endurnýjuð öryggi í aðaltöflu 2024.
Ljósleiðari og innanhússlögn fyrir hann 2024. Endurnýjuð hringrásardæla fyrir kyndingu 2025.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.