Lýsing
Miklaborg kynnir: Snyrtilega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á annari hæð á vinsælum stað í 103 Reykjavík. Eignin er skráð 80,9 fermetrar og henni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin skiptist í forstofu, geymslu/þvottahús, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu.
Bókaðu skoðun hjá Gabriel Mána Hallssyni löggiltum fasteignasala í síma 7722661 eða gabriel@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Gengið er inn í opna forstofu þar sem herbergisgangur og stofa eru. Á herbergisgangi er rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskápum í ljósum lit sem ná yfir allan vegginn og til lofts. Sitthvorum megin við hjónaherbergið er svo annað svefnherbergi og baðherbergi. Á baðherbergi eru ljósar flísar á veggjum og gólfi, snyrtileg hvít innrétting með stórum spegil, hvítur upphengdur skápur og sturta. Í alrými er björt og stór stofa þar sem útgengt er á góðar suður svalir. Við hlið stofu er svo eldhús með góðum krók, ljós innrétting, efri og neðri skápar með flísum í hólfi, innfeldur ísskápur, helluborð og bakaraofn, lítið borð með fallegum ljósapanil að ofanverðu. Inn af eldhúsi er þvotthús og geymsla í einu og sama rýminu.
Gólfefni: ljósar flísar.
Sameign er snyrtileg og vel við haldin, á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Sérmerkt stæði fylgir eigninni í lokaðri bílageymslu sem er staðsett vestan megin við húsið.
Um er að ræða eign á eftisóttum stað, stutt í stofnbrautir og alla helstu þjónustu, skóla á öllum stigum - Kringlan í örstuttu göngufæri.
Nánari upplýsingar veita:
Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is