Lýsing
Miklaborg kynnir: 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi að Rauðarárstíg 33 í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin snýr út í bakgarð til austurs. Einstaklega stór verönd sem nýtur sólar fram yfir hádegi. Stutt er í skóla á öllum stigum, Sundhöll Reykjavíkur, verslanir, veitingastaði og alla helstu þjónustu.
Bókið skoðun hjá Jóni Rafni fasteignasala í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Forstofa er inn af snyrtilegri rúmgóðri sameign með lyftu. Innan íbúðar er tvöfaldur viðarfataskápur.
Baðherbergi er með sturtuklefa, salerni, skáp undir handlaug og veggfestum speglaskáp. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi er með fataskáp. Dúkur á gólfi og útgengt á austur verönd.
Eldhús er að hluta til opið inn í borðstofu og stofu. Innrétting á tveimur veggjum. Vel með farin og gott skápapláss.
Stofa og borstofa eru samliggjandi. Bjart rými með útgengi út á A-verönd.
Hellulögð verönd er eftir endilangri íbúðinni. Gróinn sameiginlegur garður með leiktækjum.
Þvottahús er innan íbúðar. Þar er tengi og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur og hillur. Dúkur á gólfi.
Geymsla/dekkjageymsla er sér í sameign á 1. hæð (304).
Bílageymsla er lokuð og með myndavélakerfi. Stæði er sér merkt (B15 (205).
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á 1. hæð.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is