Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 104,9 m2, 4ra herbergja endaíbúð á 3.hæð í nýlegu lyftuhúsi (byggt 2023) ásamt stæði í bílageymslu við Rökkvatjörn 1 í Úlfarsárdal, 113 Reykjavík. Eignin er skráð 104,9 m2 þar af íbúð 95,7 m2 og geymsla 9,2. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi og geymslu. Sérmerkt bílastæði í bílageymslu. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi í bílakjallara. Svalir með rennihurð í suðausturátt með fallegu útsýni. Allar íbúðir eru með sér loftræstikerfi.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Komið er inn forstofu með fataskápum og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa er í opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi. Gengið er út á svalir í suðausturátt.
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju frá Axis. Í innréttingu ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir stórum ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu, skolvask, innréttingu, handklæðaofn og vegghengdu salerni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Flísar á gólfum og veggjum.
Sérgeymsla er í sameign. Er skráð 9,2 m2.
Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni er búið að setja upp hleðslustöðvakerfi í bílakjallaranum.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 78.950.000,-
Verð kr. 85.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.