Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

2267

svg

1823  Skoðendur

svg

Skráð  14. júl. 2025

fjölbýlishús

Bræðraborgarstígur 49

101 Reykjavík

58.900.000 kr.

1.076.782 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2002478

Fasteignamat

48.200.000 kr.

Brunabótamat

26.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1932
svg
54,7 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Elka Guðmundsdóttir s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir mjög sjarmerandi og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á 1. hæð í hjarta Vesturbæjarins.
Eignin er í fallegu og vinsælu fjölbýlishúsi með góðri sameign og skjólgóðum fallegum garði – aðeins steinsnar frá helstu þjónustu, háskóla og miðbænum.
Íbúðin er tóm og tilbúin til afhendingar - myndir með húsgögnum eru gerðar með gervigreind.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Gengið er upp nokkrar tröppur í sameign og þaðan í alrými íbúðarinnar sem er með parketi á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, fínu skápaplássi og flísum milli skápa.  Gluggi sem vísar útí garðinn.
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Svefnherbergi með nýlegum stórum fataskáp.
Baðherbergi með innfelldri lýsingu, upphengdu salerni, sturtuklefa, handklæðaofni og opnanlegum glugga.
Rúmgott herbergi/geymsla á jarðhæð með glugga, sem jafnvel gæti nýst sem vinnuaðstaða eða svefnherbergi.  
Eignin er skráð skv. FMR 54,7 m², íbúðin er 43,3 m² og geymslan 11,4 m²
Sameiginleg hjólageymsla, þvottahús og þurrkherbergi með aðstöðu fyrir þvottavélar og þurrkara hvers íbúðareiganda.
Gróinn bakgarður með leiktækjum og góðu næði – garðurinn er lokaður á næturnar. 
Endurbætur síðustu ára:  Búið er að endurnýja eldhúsinnréttingu og baðherbergi.  Fataskápur, hurðarhúnar, tenglar og rofar.  Ný rafmagnstafla og dyrasími endurnýjaður.

Frábær staðsetning í rólegu og eftirsóttu hverfi – stutt í verslanir, sundlaug, kaffihús, heilsugæslu, leik- og grunnskóla. Háskóli Íslands í göngufæri og sjávarsíðan rétt hjá.
Afar vel staðsett og sjarmerandi lítið heimili í fjölbýli með sterku húsfélagi.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Elka Guðmundsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Elka Guðmundsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. jan. 2025
48.200.000 kr.
57.000.000 kr.
90102 m²
633 kr.
22. sep. 2020
32.300.000 kr.
38.100.000 kr.
54.7 m²
696.527 kr.
4. maí. 2018
29.700.000 kr.
31.500.000 kr.
54.7 m²
575.868 kr.
23. sep. 2014
16.550.000 kr.
23.900.000 kr.
54.7 m²
436.929 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Elka Guðmundsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ