Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Steindór Guðmundsson
Vista
svg

87

svg

74  Skoðendur

svg

Skráð  14. júl. 2025

einbýlishús

Reykjaflöt 3

846 Flúðir

64.900.000 kr.

413.376 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2203686

Fasteignamat

55.300.000 kr.

Brunabótamat

66.490.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1976
svg
157 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni

Lýsing

Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s.846-6581 og Hús fasteignasala, kynna í einkasölu eignina Reykjaflöt 3, 846 Flúðum. Um er að ræða 142,6fm einbýlishús sem stendur á 1312,0 m² eignarlóð við bæinn Reykjaflöt rétt hjá Flúðum ásamt 14,4 fm. geymslu byggð árið 2007 sem getur nýst sem gestahús. Samtals 157,0 fm. samkvæmt fasteignamati. Einnig er 10fm nýleg hitakompa sem er ekki skráð í heildar fermetrum.
Hér er tækifæri fyrir þá sem vilja komast í friðsælt umhverfi með stórbrotnu útsýni. Þetta er rúmgóð eign sem getur nýst bæði sem sumarhús eða sem heilsárshús.

Sjón er sögu ríkari.


Húsið er byggt árið 1976  úr timbri og er klætt að utan með liggjandi bjálkaklæðningu. Að innan telur eignin forstofu, stofu, eldhús, borðstofu, fjögur svefnherbergi, þvottahús og tvö baðherbergi. Nýtt Pergo harðparket frá Agli Árnasyni er á gólfum í alrými og svefnherbergjum, baðherbergi og forstofa er með flísum á gólfi. Hurðir innandyra hafa allar verið endurnýjaðar. Skipt var um járn á þaki árið 2021. Hljóðvistarplötur eru í borðstofu, eldhúsi og stofu.

Nánari lýsing:

Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Inn af forstofu er svefnherbergi.
Forstofa #2: Er með flísum á gólfi og fataskáp, útgengt út á pall/verönd.
Eldhús er með fínni svartri eldhússinnrétting sem er nýlega filmuð. Borðstofa er í opnu alrými, björt og rúmgóð. Svefnherbergin eru fjögur og eru fataskápar í þeim öllum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar og sturta og innrétting með handlaug.
Gestasnyrting er með flísum á gólfi, gólföstu salerni og vaskaskáp.
Í þvottahúsi er ný innrétting með pláss fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og vask.
Stofan er björt og rúmgóð.

Eignin hefur fengið talsverðar endurbætur seinustu ár.

Möguleiki á að eignin geti verið afhent við kaupsamning.


Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is.

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. mar. 2018
22.300.000 kr.
18.500.000 kr.
157 m²
117.834 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum