Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1979
96,6 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 19. júlí 2025
kl. 12:30
til 13:00
Opið hús: Furugrund 70, 200 Kópavogur, Íbúð 07 03. Eignin verður sýnd laugardaginn 19. júlí 2025 milli kl. 12:30 og kl. 13:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg 3ja herbergja íbúð á efstu hæð (7.hæð) í lyftuhúsi með stæði í lokaðri bílageymslu. Glæsilegt útsýni er frá íbúðinni til suðurs og austurs. Íbúðin getur verið laus fljótlega. Nýlegt baðherbergi með sturtu.Íbúðin er skráð 96,6 fm en þar af er bílskýlið skráð 23,8 fm. Geymsla íbúðar á jarðhæð er ekki skráð í fermetrum. Íbúðin er merkt 07-03. Fasteignamat 2026 verður kr. 64.700.000,-
Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Geymsla, hjólageymsla og þvottahús eru á jarðhæð.
Nánari lýsing
Komið inn í forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er rúmgóð stofa og borðstofa. Frá stofu er gengið út á suðursvalir. Eldhúsið er opið inn í stofu með snyrtilegum innréttingum og tækjum. Ísskápur og uppþvottavél fylgja. Baðherbergið er nýlega endunýjað. Sturta, innréttingar og flísar, (nánari upplýsingar hjá fasteignasala um framkvæmdir). Aðstaða fyrir þvottavél var útbúin á baði. Útsýnisgluggi er úr eldhúsi og baðherbergi. Svefnherbergin eru bæði parketlögð og með Pax fataskápum með spegilhurðum frá Ikea. Flísar eru á gólfum, nema harðparket á svefnherbergjum.
Góð íbúð á vinsælu svæði í Kópavogi. Stutt í útivist, verslanir, skóla og Fossvogsdalinn.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Löggiltur fasteignasali í síma 824-9098, hilmar@eignamidlun.is og H. Daði Hafþórsson Löggiltur fasteignasali, í síma 8249096, dadi@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. okt. 2020
36.250.000 kr.
41.900.000 kr.
96.6 m²
433.747 kr.
22. jan. 2008
17.155.000 kr.
19.500.000 kr.
96.6 m²
201.863 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025