Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

54

svg

38  Skoðendur

svg

Skráð  15. júl. 2025

fjölbýlishús

Laugavegur 168 íb701 Heklureitur

105 Reykjavík

234.900.000 kr.

726.345 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2529807

Fasteignamat

121.800.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
323,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Aukaíbúð

Lýsing

Fasteignasalan TORG Kynnir: Glæsileg 4-5 herbergja íbúð með stóra þaksvalir til suðurs, og tvö bílastæði í bílakjallara. Íbúð merkt:701, sem skilast fullbúin án gólfefna. Alls er eignin 161,7fm að stærð á 7.  og næst efstu hæð í góðu lyftuhúsi. Þaksvalir eru rúmgóðar, skráðar 89,3fm. Íbúðin sjálf er skráð 146,2fm og skiptist í anddyri, baðherbergi og þvottaherbergi inn af. Alrými með eldhúsi m/eyju, borðstofu og stofu með útgengi út á suður - þaksvalir. Sjónvarpshol/herbergi. Hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi, barnasvefnherbergi, og sér geymslu í sameign merkt: 0055, skráð 15,5fm, og tvö bílastæði merkt: B10 og B15.  Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Aðalstein Bjarnason, fasteignasali í GSM: 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is 

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Nánar um íbúð 701:
Glæsileg íbúð með miku útsýni yfir borgina til suður og suð-vesturs. Stórar og rúmgóðar þaksvalir um 89,3fm, þar sem gert er ráð fyrir heitum potti. Eldhús og borðstofa með útgengi með svalahurð og einnig með rennihurð út í þakgarð. Innaf eldhúsi er búr.  Sjónvarpshol/herbergi, gott svefnherbergi og glæsileg hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Þvottahús innaf gestabaðherbergi með sturtu. 
Í eldhúsi verður eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr Studioline gerðinni en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna ánægjulegri. Öll tæki í eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar. ÞEMA innréttinga í þessari íbúð er Náttúra auk spónlagðir efri skápa. Að auki fylgir íbúðinni sér geymsla í sameign, merkt: 055, skráð 12,8fm  og tvö bílastæði í bílakjallara, merkt: B10 og B15.
Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði. 
Íbúðirnar á efri hæðum, hafa einstakt útsýni til fjalla og yfir borgina. 
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 
Áætluð afhending í nóvember 2025
Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Aðalstein Bjarnason, fasteignasali í GSM: 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is 

Heklureiturinn. 

Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu.

Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur.

Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025.
Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað.

Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens. 

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Skipulag:
Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168.

Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.

Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

Hönnun:
Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*

img
Aðalsteinn Bjarnason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Aðalsteinn Bjarnason

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Aðalsteinn Bjarnason

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ