Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Sunnusmári 23

201 Kópavogur

112.000.000 kr.

862.202 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2507304

Fasteignamat

96.850.000 kr.

Brunabótamat

95.220.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
129,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Nýtt á skrá! Sunnusmári 23 (efsta hæð) - Bókið skoðun.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna glæsilega 3-4ra herbergja 129,9 fermetra  íbúð á 6. hæð (efstu) með mikilli lofthæð yfir allri íbúðinni (um 3 metrar) í nýlegu og vönduðu fjölbýli með lyftu og tveimur svölum við Sunnusmára 23 í Kópavogi. Bílastæði er staðsett í lokaðri bílageymslu. Sérgeymsla er 8,3 fermetrar að stærð og staðsett í geymslugangi hússins. Þvottaherbergi er staðsett innan íbúðar. Íbúðin stendur hátt og því er útsýni til fjalla frá stofurými og svölum. Möguleiki er að bæta við þriðja svefnherberginu á kostnað sjónvarpsrýmis í stofu.

Húsið er afar fallegt og vandað, byggt árið 2020. Húsið er klætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Hellulagðar stéttar fyrir framan hús. Sameiginleg stæði fyrir framan hús. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Myndavéladyrasími er í íbúð og er sameign snyrtileg og til fyrirmyndar. Fallegar innréttingar frá Axis eru í íbúðinni.

Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.

Fasteignamat næsta árs (2026) er kr. 102.700.000,-

Lýsing eignar:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og handklæðaofn. Falleg innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni og útloftun. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi og góðum skápum. Gluggar til vesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi og glugga til vesturs.
Alrými samanstendur af eldhúsi, borðstofu, setustofu og sjónvarpsstofu. Stórir gluggar með glæsilegu útsýni yfir Kópavoginn og til fjalla. Útgengi á tvennar svalir út stofu.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá AXIS. Gorenje bakaraofn, Gorenje spanhelluborð og falleg eyju vifta. Innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél frá Gorenje. Lýsing undir efri skápum.
Borðstofa: Með harðparketi á gólfi og stórum gluggum til norðurs og austurs. Útgengi á svalir I.
Svalir I: Snúa til norðausturs. Fallegt útsýni yfir höfuðborgina og til fjalla.
Setustofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til vesturs og norðurs. Útgengi á svalir II.
Svalir II: Snúa til vesturs. Fallegt útsýni.
Sjónvarpsrými: Er staðsett inn af stofu. Harðparket á gólfi og gluggar til vesturs. Möguleiki að breyta og bæta við þriðja svefnherberginu.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og góðri innréttingu með skápaplássi. Opnanlegur gluggi, vinnuborð og vaskur.

Bílastæði: Er vel staðsett í lokuðum og upphituðum bílakjallara (merkt B22). Rafhleðslustöð er komin við stæði.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. 
Sér geymsla: Er staðsett í geymslugangi hússins. Geymsla er 8,3 fermetrar að stærð.

Húsið að utan: Lítur vel út. Viðhaldslítið og nýlegt klætt hús. 
Lóðin: Er frágengin, vel hirt, tyrfðar flatir og hellulagðar stéttar. Sameiginleg bílastæði á lóð.

Allar nánari upplýsingar veita:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. maí. 2021
61.050.000 kr.
75.000.000 kr.
129.9 m²
577.367 kr.
23. des. 2020
61.050.000 kr.
73.900.000 kr.
129.9 m²
568.899 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur