Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Vista
fjölbýlishús

Sólheimar 25

104 Reykjavík

72.900.000 kr.

704.348 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021637

Fasteignamat

70.750.000 kr.

Brunabótamat

55.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1962
svg
103,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 24. júlí 2025 kl. 12:00 til 12:30

Lýsing

Miklaborg kynnir: Fallega og bjarta 3ja/4ra herbergja íbúð á 10.hæð í lyftuhúsi á fínum stað í Laugardalnum. Íbúðin hefur glugga í þrjár áttir og státar af einstöku útsýni. Samkvæmt skráningu er birt flatarmál eignarinnar 103,5 fm og skiptist hún í forstofu, tvö stór svefnherbergi, eldhús, borðstofu, stofu og baðherbergi.


Bókaðu skoðun hjá Gabriel Mána Hallssyni löggiltum fasteignasala í síma 7722661 eða gabriel@miklaborg.is


Nánari lýsing:

Gengið er inn í forstofu sem hefur stóra fataskápa til lofts, á þeim gangi eru baðherbergi og hjónaherbergi. Á baðherbergi er snyrtileg hvít innrétting með skápum, baðkar með sturtu, flísar á gólfum og veggjum, gluggi með opnanlegu fagi. Hjónaherbergi er rúmgott með stórum dökkviðarlitiðum fataskáp sem ná yfir heilan vegg, útgengt á útsýnis svalir sem snúa til suðurs. Á móti hjónaherbergi eru borðstofa og eldhús, í sama hluta íbúðar eru tvö minni svefnhergi sem hafa þó verið sameinuð í eitt stærra herbergi. Í eldhúsi er stór borðkrókur með dökkviðarlituðum efri og neðri skápum, ljósar flísar á milli þeirra, gott vinnupláss á borðum, gluggi með opnanlegu fagi og fallegu útsýni til norðurs. Stofan er í horni íbúðarinnar, einstaklega björt með gólfsíðum gluggum til suðurs, einnig gluggum til vestur, útgengt á suður svalir.


Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign. Sameiginlegt þvottahús og þaksvalir eru á 12.hæð hússins.

Góður fjöldi bílastæða á lóð hússins og rafhleðslustöðvar hafa verið settar upp.


Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi miðsvæðis við Laugardalinn. Stutt er í alla verslun og þjónustu, m.a. Glæsibæ, Skeifuna, leikskóla, grunnskóla, menntaskóla, sundlaug, heilsurækt, heilsugæslu og bókasafn. Laugardalurinn er í göngufjarlægð með allri þeirri útivist sem hann hefur upp á að bjóða.


Nánari upplýsingar veitir Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík