Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Árni Björn Kristjánsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Vista
svg

903

svg

658  Skoðendur

svg

Skráð  26. júl. 2025

raðhús

Sólheimar 39

104 Reykjavík

135.000.000 kr.

767.482 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021956

Fasteignamat

111.750.000 kr.

Brunabótamat

85.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1960
svg
175,9 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Palsson Fasteignasala kynnir:

Glæsilegt fjölskylduhús með aukaíbúð í hjarta Laugardalsins
Rúmgott og vel skipulagt fjölskylduhús á þremur hæðum með séríbúð á jarðhæð. Eignin er skráð 175,9 fm og hefur fengið miklar endurbætur á síðustu árum.


-  5 Svefnherbergi
-  Aukaíbúð
-  Mikil endurnýjun á síðustu árum
-  Frábær staðsetning



Nánari upplýsingar veita:
Tinna Bryde, Lgf. í síma 660-5532 | tinna@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing eignar
Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson og stendur í grónu og fjölskylduvænu hverfi við Laugardalinn.
Jarðhæð:
Aðalinngangur, forstofa, hol og rúmgott þvottahús með útgengi í garð.
Á jarðhæð er einnig séríbúð (þar sem áður var bílskúr) sem samanstendur af stofu, eldhúsi með glugga, svefnherbergi og baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og glugga. Innangengt er úr aukaíbúð í þvottahúsið.
Miðhæð:
Björt og opin miðhæð með stórum stigapalli. Eldhús hefur verið endurnýjað með eikarinnréttingum frá Brúnás og góðum borðkrók. Opið rými í borðstofu og stofu með útgengi á stórar suðursvalir.
Efsta hæð:
Gangur, fjögur svefnherbergi og fataherbergi innaf hjónaherbergi. Útgengi á suðursvalir úr einu herberginu. Endurnýjað baðherbergi með sturtubaðkari, innréttingu og glugga.
Við húsið hefur verið sett upp rafhleðslustöð sem fylgir með.

Helstu endurbætur
Eigendur hafa lagt mikla vinnu í að viðhalda og endurbæta húsið á síðustu árum. Meðal framkvæmda má nefna:
2025: Öryggiskerfi og myndavéladyrasími frá Securitas, suðurhlið hússins máluð, geymsla undir stiga flotuð og máluð. Teiknaður pallur, teikningar fylgja. 
2024: Nýjar neysluvatnslagnir á 2. og 3. hæð. Gólfhiti settur á 2.og 3.hæð með Danfoss Alley stýringu.  Returofnlokar endurnýjaðir á baðherbergi og stigagangi. Málað innanhúss, eldhúsinnrétting sprautulökkuð að hluta.
2024: Harðparket og smelltir listar frá Birgisson á 2, og 3.hæð
2023: Skipt um glugga á miðhæð, viðgerðir á múr á svölum og suðurhlið.
2022: Skipt um þakrennur, nýtt helluborð í eldhúsi og nýtt teppi á stiga.
2021: Jarðhæð flísalögð og bílskúr breytt í séríbúð. 
2019: Skólplagnir myndaðar og fóðraðar, gluggar á efstu hæð endurnýjaðir. Skipt um svalahurð og þvottahúshurð.
Ca. 2010: Skipt um þak.
Á undanförnum árum hefur einnig verið bætt við nýjum heimilistækjum og útbúin góð geymsla á háalofti.

Umhverfi og aðstaða
Húsið stendur í rólegu og eftirsóttu hverfi við Laugardalinn.
Stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug, heilsurækt og fjölbreytta verslun og þjónustu.
Laugardalurinn býður upp á frábærar göngu- og hjólaleiðir og fjölbreyttar útivistarmöguleika í göngufæri.
Fallegt fjölskylduhús með mikla möguleika á einstakri staðsetningu – vel við haldið og tilbúið fyrir næstu eigendur.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. feb. 2016
43.250.000 kr.
49.500.000 kr.
175.9 m²
281.410 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík