Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Sómatún 3 íbúð 101

600 Akureyri

68.000.000 kr.

707.596 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2294830

Fasteignamat

55.150.000 kr.

Brunabótamat

52.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2011
svg
96,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Sómatún 3 íbúð 101 - Vel skipulögð 3-4ra herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýli í Naustahverfi - stærð 96,1 m² 

** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning ** 


Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu sem nýtist sem svefnherbergi.

Forstofa er með flísum á gólfi og spónlögðum eikar skáp. 
Eldhús er með spónlagðri eikar innréttingu með innfelldum ísskáp og frysti og ljósum flísum á milli skápa. Innfelld lýsing í lofti og parket á gólfi. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Þar eru gluggar til þriggja átta, innfelld lýsing í lofti og parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á steypta suður verönd, skráð 12,0 m² að stærð.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og spónlögðum eikar fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,4 og 13,1 m²
Geymsla er innréttuð og nýtt sem svefnherbergi í dag. Þar er parket á gólfi og spónlagður eikar fataskápur. Stærð geymslu er skv. teikningum 8,5 m².
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni og walk-in sturtu.
Þvottahús er með flísum á gólfi og bekk með stálvask. 

Annað:
- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Innfelld lýsing er í lofti í eldhúsi, stofu og á gangi.
- Hlutdeild í sameiginlegu tæknirými/geymslu tilheyrir eigninni
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. des. 2011
1.330.000 kr.
21.750.000 kr.
96.1 m²
226.327 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone