Lýsing
Viltu kynnir fallegt og rúmgott raðhús á einni hæð á góðum stað við Þrastartjörn 34, Njarðvík
Þrastartjörn 34 er eitt af 6 raðhúsum í raðhúsalengju í lokuðum botnlanga.
Einstaklega vel skipulögð eign sem skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, og bílskúr. Alrými hússins er opið og bjart, þar er mikil lofthæð og innfelld lýsing. Gólfhiti er í öllum rýmum eignarinnar.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100 elisabet@viltu.is
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939 karolina@viltu.is
Nánari lýsing
Andyri er flísalagt með góðum skápum, aðgengi í bílskúr.
Eldhús er L-laga frá Parka. Ofn í vinnuhæð, gott borðpláss. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa er í alrými sem er bjart og skemmtilegt með mikilli lofthæð, parket á gólfi, útgengi út á stóra skjólgóða verönd.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Handklæðaofn, veggsalerni og sturta. Falleg innrétting vaskur steyptur í borðplötu.
Þvottaaðstaða á baðherbergi, góð innrétting með skolvaksi.
Svefnherbergi eru þrjú, rúmgóð og björt með skápum, parket á gólfum.
Bílskúr og geymsla eru ein heild og hægt að stúka af geymslu með vegg ef vill. Búið er að setja upp milliloft.
Gólfhiti er í allri eigninni.
Lóð. Bílaplan er steypt og er það með hitalögn við bílskúr sem og stétt við inngang. Stæði fyrir þrjá bíla. Búið er að smíða verönd í garðinum við suðurhlið hússins og lagnir komnar fyrir heitann pott.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.