Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Vista
svg

995

svg

671  Skoðendur

svg

Skráð  8. ágú. 2025

hæð

Langholtsvegur 4

104 Reykjavík

110.000.000 kr.

652.045 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2017770

Fasteignamat

98.400.000 kr.

Brunabótamat

78.570.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1959
svg
168,7 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 12. ágúst 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Langholtsvegur 4, 104 Reykjavík. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 12. ágúst milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna:  Langholtsvegur 4, 104 Reykjavík.

Falleg efri hæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi og bílskúr, samtals 168,7 fm í Langholtshverfi. Húsið er steinsteypt, byggt árið 1959 og hefur fengið gott viðhald síðustu ár. Húsið stendur á innri lóð við götuna með aðgengi um innkeyrslu. Á lóðinni eru tvö bílastæði og tilheyrir annað eigninni auk stæðis fyrir framan bílskúr. Góð staðsetning í borginni í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu.

Eignin telur forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, rúmgott eldhús, bjarta borðstofu og stóra stofu með útgengi á svalir og yfir á skjólgóðan og sólríkan pall sem hefur verið útbúinn á þaki bílskúrs. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús ásamt góðu geymsluherbergi með glugga. Bílskúrinn sem stendur við húsið telur 32,5 fm með aðkomu um innkeyrslu. 

Smellið hér fyrir myndband af eigninni

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í forstofu um sérinngang. Flísar á gólfi. Möguleiki er á uppsetningu gestasalernis samkvæmt upphaflegum teikningum. Gengið er úr forstofu niður stiga í sameign með þvottahúsi og geymslu. 
Gangur: Komið er úr forstofu á gang með svefnherbergjum á vinstri og hægri hönd. 
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi og glugga til suðurs. Parket á gólfum.
Svefnherbergi II: Parket á gólfum með glugga til norðurs. 
Svefnherbergi III: Bjart með parket á gólfum og gluggum til vesturs og norðurs. 
Eldhús: Rúmgott með góðu skápa- og vinnuplássi með útsýni til norðurs. Gaseldavél með háfi. Opið inn í fallega borðstofu. Parket á gólfum.
Borðstofa: Stór samliggjandi með eldhúsi og stofu með glugga til suðurs.
Stofa: Einstaklega rúmgóð með aðgengi að svölum sem leiða að fallegu útisvæði með trépalli sem er ofan á bílskúrnum.
Baðherbergi: Endurnýjað 2009 með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar og sturta. Upphengt salerni. Handklæðaofn á vegg. 
Geymsla: Í kjallara með glugga í norður.
Þvottahús: Sameiginlegt á neðri hæð hússins.
Bílskúr: 32,5 fm bílskúr með góðri innkeyrslu fyrir framan. Í aftari hluta bílskúrs er afmarkað rými með hurð út á lóð. 
Háaloft/þakrými: Lúga af gangi er upp í rýmið.

Einstaklega fallega lagt gegnheilt parket með fiskibeinamynstri er á stofum, gangi, eldhúsi og herbergi III. 

Listi yfir viðhald og endurbætur sem gerðar hafa verið:
2024 Skipt um pappa og járn í þaki og settar nýjar rennur
2024 Þriggja fasa rafmagn sett upp
2023 Múrviðgerðir og hús málað að utan
2016 Ný útidyrahurð og ný þvottahúshurð
2015 Bílskúrsþak klætt með tjörupappa, pallur og skjólveggur settur upp.
2010 Skipt um alla glugga, nema í geymslu í kjallara.
2010 Ný svalahurð
2009 Baðherbergi endurgert
2004 Loftplata í háalofti einangruð
2004 Eldhús fært inn í eina stofuna og fyrra eldhúsið gert að svefnherbergi.

Eignin Langholtsvegur 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-7770, birt stærð 168.7 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, tölvupóstur dr@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

img
Daði Runólfsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Gimli fasteignasala
Skipholt 35, 105 Reykjavík
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
img

Daði Runólfsson

Skipholt 35, 105 Reykjavík
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone

Daði Runólfsson

Skipholt 35, 105 Reykjavík