Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.
Ásmundur Skeggjason
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Kristinn Tómasson viðsk.fr. MBA
Þórarinn Friðriksson
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
269,8 m²
svg
11 herb.
svg
3 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

FJÖLSKYLDUVÆNT UM 270 FM RAÐHÚS MEÐ AUKA ÍBÚÐ ÁSAMT BÍLSKÚR - 109 REYKJAVÍK. 

Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 269,8 fm.

Um er að ræða endaraðhús í þriggja húsa lengju, byggt árið 1978 ásamt bílskúr í bílskúrslengju byggðum árið 1981.
 
Húsið er á þremur hæðum. Búið er á að útbúa sér íbúð á neðstu hæð sem er með tveimur svefnherbergjum. Gengið er inn á miðhæð en á henni er forstofa, forstofuherbergi, gestasnyrting, eldhús og rúmgóðar stofur. Úr stofunni er gengið út á suður svalir. Á efstu hæðinni eru fjögur svefnherbergi, eitt mjög rúmgott undir súð, tvö góð, annað þeirra með suður svölum og svo fjórða minna ásamt rúmgóðu baðherbergi. Einnig er stór geymsla á sömu hæð. Á neðstu hæðinni er opið rými og þvottahús. Búið er að útbúa íbúð með sér inngangi á neðstu hæð með tveimur svefnherbergjum og stórri stofu, útgegnt er úr stofu út í suðurgarð.

Nánari lýsing
Neðsta hæð: Sér íbúð með tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi ásamt útgangi út á suður verönd úr stofu. Gólfefni eru parket og flísar. Einnig er á neðstu hæðinni hol úr stiga og svo þvottahús.
Miðhæð: Aðalinngangur er á miðhæð en þar er rúmgóð forstofa, forstofuherbergi, gestasnyrting, gangur, eldhús, lítið þvottahús/geymsla og baðherbergi. Stofurnar eru þrjár, borðstofa ásamt stofu og svo sjónvarpsstofa. Arinn er í aðalstofunni og þaðan er útgangur út á góðar suður svalir. Gólfefni eru parket og gólfdúkur.
Efsta hæð: Stigapallur, fjögur svefnherbergi en hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðu skápaplássi og suður svölum. Eitt herbergi undir súð er einnig rúmgott. tvö önnur svefnherbergi eru á hæðinni. Baðherbergi með bæði baðkari og sturtu. Að auki er á hæðinni góð geymsla sem er töluvert undir súð.
Bílskúr:  Skráður 21,3 fm, með bæði köldu og heitu vatni ásamt rafmagni.

Ljósleiðari er kominn inn í húsið.
Húsið býður upp á ýmsa möguleika.

Að sögn eiganda hefur húsið fengið venjubundið viðhald í gegnum tíðina, en um árið 2015 var skipt um skolplagnir undir húsinu. Í kringum árið 2005 var skipt um alla ofna í húsinu. Búið er að endurbyggja tröppur inn í húsið og báðar svalirnar.

 Hér er um að ræða rúmgott fjölskylduhús með góðum garði í grónu hverfi, mjög stutt er í skóla og leikskóla.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

img
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Höfði fasteignasala
Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone
img

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík