Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2025
svg
171,7 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Laus strax
Opið hús: 14. ágúst 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Huldudalur 9, 260 Reykjanesbær. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 14. ágúst 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Valný fasteignasala kynnir:

Huldudal 9, 260 Reykjanesbæ

Eignin er vel skipulögð með þremur rúmgóðum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, rúmgóðri stofu og borðstofu í björtu og opnu alrými ásamt glæsilegu eldhúsi með vandaðri innréttingu frá Rehau og tækjum frá BOSCH. Eignin skilast með skjólvegg á milli lóða og vélslípaðri stétt  og verða lagnir fyrir heitum/köldum potti. Lóðinar skilast snyrtilega frágengnar með tyrfingu í suðurhluta. Skýli fyrir þrjár flokkunartunnur verða við innkeyrslu hverrar íbúðar. Botnlangi frá götu að húsum verður malbikaður. Af botnlanga er ekið inn á steyptar og hellulagðar innkeyrslur að íbúðum með hitalögn tilbúinni til tengingar.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að sjá eignina í 3D.


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 171.7 m², þar af er íbúðarrými 143,30 m² og innbyggður bílskúr 28,40 m². Eign merkt 01-01, fastanúmer 251-9530 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
eru flísar á gólfi og fataskápur. Inngengt frá forstofu inn í bílskúr.
Eldhús er með svartri innréttingu sem býður upp á gott skúffu- og skápapláss, innfelldan ísskáp og uppþvottavél. Eyja úr steini með helluborði og aðstöðu fyrir barstóla. Parket á gólfi. Einnig fylgja örbylgjuofn, bakaraofn og loftræsting með útsogi. 
Stofa og borðstofa mynda opið og bjart alrými með parketi á gólfi og beinu útgengi út á verönd.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi og loftræstingu.
Tvö svefnherbergi eru bæði með fataskáp og parketi á gólfi og loftræstingu. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með snyrtilegri innréttingu sem býður upp á ágætt skápapláss, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Útgengt út á verönd.
Þvottahús er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og vaski og blöndunatæki í steinborðsplötu. Þvottavél og þurrkari frá BOSCH fylgja einnig.
Bílskúr er 28,4 m² að stærð. Skilast með floti á gólfi og rafmagshurðaropnara.

Gólfefni er ljósgrátt parket frá Quikstep og er á öllum herbergjum og alrými. Í forstofu eru ljósgráar 60x60 flísar og einnig á salernum og þvottahúsi. Bílskúr skilast með flotuðu steingólfi. Innihurðir verða svartar með einföldum lömum. Innréttingar og fataskápar eru svartar frá Rehau. Steinplötur eru í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.

Byggingarlýsing:
Þak er með tvöföldum ásoðnum þakdúk. Þakkantur er klæddur með álklæðningu í sama lit og klæðning húsins sem er stuðluð álklæðning. Gluggar og hurðir eru úr ál/timbri í svörtum lit að utan en frágangur í kringum glugga og hurðir er úr áli í sama lit og utanhússklæðningin. Útveggir eru klæddir að utan með stuðlaðri álklæðningu í sama lit og þakkantur. Ídráttarrör fyrir bílahleðslutæki frá rafmagnstöflu að útvegg verður lagt. Íbúðin skilast með fullbúnu loftræstikerfi með varmaendurvinnslu með innlæstri í öll svefnrými og miðrými eignar og afsogi af salernum, þvottahúsi og eldhúsi.

Lóð og aðkoma:
Í suðurgarði íbúðanna verður lóð tyrfð ásamt hellulagðri stétt með lögnum fyrir heitan/kaldan pott. Skjólveggur á milli lóða verður einnig tilbúinn. Skýli fyrir þrjár flokkunartunnur verða við innkeyrslu hverrar íbúðar. Botnlangi frá götu að húsum verður malbikaður. Af botnlanga er ekið inn á steyptar og hellulagðar innkeyrslur að íbúðum með hitalögn tilbúinni til tengingar. Einnig eru ídráttarrör út fyrir sökkul fyrir heitan pott í garð innifalin. 

Afhendingartími:
Áætlaður afhendingartími er 16. júní 2025
Byggingaraðili er Blikksmiðja Suðurnesja ehf.

Nánari upplýsingar veita:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

img
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valný fasteignasala
Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
phone
img

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. feb. 2025
24.250.000 kr.
200.000.000 kr.
10101 m²
19.800 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær
phone

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Tjarnargata 2, 230 Reykjanesbær