Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

3792

svg

2722  Skoðendur

svg

Skráð  12. ágú. 2025

fjölbýlishús

Austurgata 26

220 Hafnarfjörður

63.900.000 kr.

923.410 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2073522

Fasteignamat

46.650.000 kr.

Brunabótamat

40.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1919
svg
69,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 16. ágúst 2025 kl. 12:00 til 12:30

Opið hús: Austurgata 26, 220 Hafnarfjörður, Íbúð/bjalla merkt: 202. Eignin verður sýnd laugardaginn 16. ágúst 2025 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.

Lýsing

Fasteignasalan TORG og Margrét Rós lgf. kynna í sölu einstaklega fallega og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð við Austugötu 26. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða eign með aukinni lofthæð í þessu sögufræga húsi í miðbæ í Hafnarfjarðar. Eignin skiptist í anddyri, gang, eldhús ásamt stofu og borðstofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu ásamt sérgeymslu í sameign. Fallegur sameiginlegur garður er fyrir aftan hús ásamt geymsluskúr og bílastæði að framanverðu. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

*** SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT ***

Einkar falleg og mikið endurnýjuð eign á eftirsóttum stað í hjarta Hafnarfjarðar. Öll helsta þjónusta og verslanir í göngufæri, ásamt frábærum matssölustöðum, kaffihús og verslunum allt í kring. Leikskóli og grunnskóli ásamt fjölbreyttu íþróttastarf er í gögnufæri auk þess sem stutt er í góð útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir til að njóta útiverunna

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 69,2 m² þar af er sér geymsla á jarðhæð 6,2 m²

Nánari lýsing:
Anddyri/gangur með rúmgóðum skáp og parket á gólfi.
Alrými með samliggjandi eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, og þar er parket á gólfi.
Eldhús er opið við borðstofu með stórum gluggum á tvo vegu. Eikarinnrétting með góð skápaplássi og tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Stofa er björt og rúmgóð með fallegum stórum gluggum til suðurs og vesturs og parket á gólfi.  
Hjónaherbergi rúmgott, inn af stofu með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Barnaherbergi er bjart með glugga til norðurs og parket á gólfi. 
Baðherbergi er nýlega endurnýjað með flísum á gólfi og vegg að hluta, fallegri innréttingu, vask, blöndunartæki og sturtu. Upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla sem tilheyrir eigninni er á jarðhæð.
Sameiginlegt þvottahús er á sameignargangi á jarðhæð þar sem hver íbúð er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Skjólgóður og gróinn sameiginlegur garður með sameiginlegum geymsluskúr með rafmagni, nýttur sem hjóla og vagnageymsla

ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR

Viðhald á húsi og saga skv fyrri sölugögnum: Austurgata 26 er þriggja hæða steinsteypt íbúðarhús með risi, byggt árið 1919 en var mikið endurnýjað árin 2004 - 2005 á vegum Hafnarfjarðarbæjar sem átti húsið. Bærinn stóð fyrir endurbótum á ytra byrði hússins sem og endurnýjun á þaki. Árið 2005 var farið í gagngerar endurbætur og endurnýjun innanhúss á vegum nýs eiganda. Þá var skipt um allar vatns- og raflagnir sem og innréttingar og gólfefni ásamt því að skipulagi var talsvert breytt. Árið 2018 voru allar þakrennur endurnýjaðar. Árið 2019 voru allir gluggar málaðir að utan.  

Frábær staðsetning í hjarta Hafnarfjarðar, stutt í alla helstu þjónustu og í örstuttu göngufæri við fjölda veitingastaða og verslana.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Margrét Rós Einarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. ágú. 2020
29.350.000 kr.
37.300.000 kr.
69.2 m²
539.017 kr.
17. ágú. 2018
24.150.000 kr.
35.000.000 kr.
69.2 m²
505.780 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ