Opið hús: Eskivellir 1, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 19. ágúst 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt HMS 108,4 fm og þar af er sérgeymsla í sameign skráð 3,3 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 75.600.000 kr.
Nánari lýsing:
Anddyrisgangur með góðum skáp og parket á gólfi.
Þvottahús er rúmgott með flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi og opið inn í eldhús. Útgengt á stórar svalir.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og háf yfir helluborði.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi. Útgengt á svalir.
Svefnherbergi II er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með snyrtilegri filmaðri innréttingu, baðkari með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla innan íbúðar er rúmgóð og getur einnig nýst sem skrifstofa eða leikherbergi.
Sérgeymsla íbúðar á geymslugangi í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla við bílakjallara.
Fjölskylduvæn eign á góðum stað, nálægt verslun, leik- og grunnskólum, íþróttum og sundlaug sem og allri helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.