Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulögð 3ja herbergja 87,9 m2 íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Breiðuvík 3, 112 Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Afgirt timburverönd í suðvesturátt. Frábær staðsetning, stutt í skóla, leikskóla og alla nærliggjandi þjónustu og verslanir.
Verið er að fara í framkvæmdir á þaki húsins og mun seljandi greiða fyrir þær framkvæmdir.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa er í opnu rými og með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á afgirta timburverönd í suðvesturátt.
Eldhús er með innréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Á bað er innrétting, salerni og baðkar með sturtu aðstöðu. Tengi er fyrir þvottavél inná baði
Geymsla er innan íbúðar. Dúkur á gólfi.
Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 65.650.000,-
Verð kr. 71.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.