Lýsing
Miklaborg kynnir: Fallegt og vel skipulagt einbýli á þremur hæðum ásamt bílskúr við Vesturbraut 7 í Hafnarfirði.
Bókið skoðun hjá Gabriel Mána Hallssyni löggiltum fasteignasala í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Gengið er inn á miðhæð í forstofu sem er með fataskápum og gestasnyrtingu inn af, flísar á gólfum. Hægt er að loka forstofu af með innfelldri rennihurð. Björt og rúmgóð stofa með opið inn í eldhús, parket á gólfi. Í eldhúsi er borðkrókur með ljósum innréttingum og góðu vinnuplássi, flísar á gólfum. Útgengt er úr alrými út á stóran pall sem umlykur suður og vestur hlið hússins. Af pallinum er hægt að ganga út í vel hirtan garð hússins sem er girtur af með stoðveggjum, fallegur grasflötur og gróður. Tvö sér bílastæði eru á hellulögðu bílaplani á norð-vestur hlið hússins, þar sem aðalinngangur er staðsettur.
Á efri hæð er herbergisgangur með hjónaherbergi, tveimur barnaherbergjum og baðherbergi með litlu þvottahúsi inn af. Svefnherbergi eru öll fremur rúmgóð og eru með parketi á gólfum, stór innfeldur fataskápur í hjónaherbergi. Baðherbergi er nýlegt með fallegum flísum á gólfum og veggjum til lofts, baðkar og walk in sturta, lítið þvottahús inn á baðherbergi með innréttingu og handklæðaofni. Háaloft er aðgengilegt með stiga og nýtist vel sem geymslurými.
Á neðri hæð er sérinngangur en einnig búið að opna þannig að það sé hægt að ganga niður stiga af miðhæð. Inn af sérinngangi er gengið inn í litla forstofu, flísar á gólfi og innrétting með vaski. Opið sjónvarpshol og lítil geymsla undir stiga, einnig rúmgott svefnherbergi, parket á gólfum í báðum rýmum. Fyrir framan inngang neðri hæðar er skjólgóður afnotareitur sem snýr til suð-vesturs og er opinn út í garð hússins.
Bílskúrinn er staðsettur á lóðinni fyrir neðan húsið og er stærð hans skráð 23,6 fermetrar. Einnig er geymslurými undir honum sem er skráð 24,6 fermetrar.
Nánari upplýsingar veitir Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is