Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Helgi Steinar Halldórsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2005
svg
187,5 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Laus strax
Opið hús: 25. ágúst 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Fannagil 6, 603 Akureyri. Eignin verður sýnd mánudaginn 25. ágúst 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Kasa fasteignir - 461-2010 

Fannagil 6 - Vel skipulagt 187,5 fm parhús með bílskúr og aukaíbúð á frábærum stað í Giljahverfi. Efrihæð telur 132,6 fm þar af bílskúr og geymsla 33,4 fm og leiguíbúð á neðrihæð 54,9 fm.
 
Aðalhæð skiptist í Forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, þvottahús, bílskúr og geymslu.


*** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning ***

Forstofa: Flísar á gólfi, góður eikar fataskápur.
Stofa: Bjart rými með gólfsíðum gluggum, fallegt útsýni til austurs. Flísar á gólfum.
Eldhús: Rúmgóð innrétting með efri og neðriskápum. Pláss fyrir tvöfaldann ísskáp í innréttingu. Eyja með skúffum. Hægt er að sitja við eyjuna.
Baðherbergi: Innrétting með góðu skápaplássi, stór sturtuklefi, vegghengt salerni.
Svefnherbergi: Eru þrjú á hæðinni, öll með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Þvottahús: Hvít innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, borðplata með vaski.
Bílskúr: Flísalagt gólf og veggir, rafdrifin bílskúrshurð.
Geymsla: Er inn af bílskúr, flísar á gólfum, hillur og skápar.

Neðrihæð ( Leiguíbúð ) : Lítil forstofa, stofa og eldhús í sama rými, baðherbergi og svefnherbergi.
Gengið er niður steyptar tröppur bakvið hús, en þar er sér inngangur inn í leigueininguna.

Forstofa: Flísar á gólfum og góður forstofuskápur.
Stofa og eldhús: Eru saman í rými, þar góð eldhúsinnrétting með eyju.
Baðherbergi: Fín innrétting með efri- og neðriskápum og vaski, pláss fyrir þvottavél í innréttingu, salerni og sturtuklefi.
Herbergi: Flísar á gólfum, rúmgóður fataskápur er í herbergi.

- Íbúðin er ný máluð að innan.
- Gólfhiti er í öllum rýmum íbúðar og leiguíbúðar.
- Stórir gluggar gefa alrými mikla byrtu og gott útsýni.
- Innfeld lýsing í loftum á efri hæð.
- Vinsæl staðsetning í Giljahverfi.
- Steypt bílaplan.
- Góðir tekjumöguleikar á neðrihæð.
- Fasteignamat 2026: 101.950.000.-

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Helgi Steinar Halldórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kasa fasteignir
Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone
img

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri