Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
svg
221,2 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt – Fullbúið - 221,2 m2 raðhús á tveimur hæðum með bílskúr við Úugötu 16 í Mosfellsbæ. Birt stærð eignarinnar er 221,1 m2, þar af er íbúðarhluti 188,2 m2 og innbyggður bílskúr 33,0 m2. Á jarðhæð er forstofa, bílskúr, svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymsla. Á efri hæðinni er hjónaherbergi með sér baðherbergi, 1 svefnherbergi, 1 herbergi/sjónvarpshol, 1 baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Svalir í suðurátt og verönd fyrir aftan hús.  Eignin afhendist samkvæmt skilalýsingu seljanda fullbúið á byggingarstigi B4. Eignin er laus til afhendingar júní 2026. Glæsilegar innréttingar frá HTH, vönduð gólfefni frá Planka og tæki frá Ormsson. Innbyggður ísskápur og frystiskápur ásamt innbyggðri uppþvottavél. Lóð frágengin með steyptu bílaplani.
Frábært fjölskylduhús á vinsælum stað, rétt við Helgafellsskóla. Stutt í almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði.
Húsið er hannað með það í huga að það væri auðvelt að útbúa auka íbúð á jarðhæð þar sem það eru tveir inngangar á jarðhæð.
 Lóð frágengin með steyptu bílaplani.

Verð kr. 155.900.000,-

Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent strax


Skilalýsing er eftirfarandi:
Utanhúss: Raðhús á tveimur hæðum með bílskúr byggt úr forsteyptum einingum frá Steypustöðinni.
Útveggir eru klæddir forsteyptri veðurkápu að utanverðu sem er málluð og timburklætt að hluta.
Þak er Filigran þak með ásteypulagi og bræddum tjörupappa, xpx einangrun og fargi. Viðsnúið þak.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri, ál/tré inngangshurðar/svalahurðar og koksgrá bílskúrshurð.
Lóð er þökulögð og bílaplön steypt og vélslípuð með snjóbræðslulögnun sem komnar eru inn í bílskúr en ótengdar. Sorptunnuskýli fyrir 3 tunnur eru á hverri lóð skv teikningu.

Innanhúss:
Gólf eru steypt, röraslödduð og flotuð og skilast með vinyl parketi frá Planka ehf á gólfum og flísum á votrýmum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir. Bílskúrsgólf eru máluð.
Innveggir: Uppsettir samkvæmt teikningu, léttir innveggir eru hlaðnir úr Lemga hleðslusteinum, sparslaðir, grunnaðir og málaðir. Veggir á baðherbergium, þvottahúsi og
bílskúr eru málaðir með sveppa og mygluvarnar málningu. Litur NCS-0500N
Loft: eru steynsteypt fíligran loft spörsluð, grunnuð og máluð. Litur NCS 0500N
Innréttingar eru frá HTH með viðar áferð í eldhúsi, böðum og andyrir en hvítum skápum í svefnherbergjum og þvottahúsi. Eldhústæki eru AEG. Innihurðir eru hvítar frá Birgisson
Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd. Rafmagn dregið í, tenglar og rofar frágengið Raflagnaefni Gira og Heimilistæki eru AEG frá Ormsson
Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Inntak hita og neysluvatns klárt. Gólfhitakerfi tengt og frágengið. Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og steypta innveggi samkvæmt teikningum. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi og afhendist án þráðlausra hitastýringa. Hámkarkshiti á heitu vatni er 60°C. Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin. Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar skipulagsteikningar. Heimtaugar rafmagns og boðtauga skulu tengdar og frágengnar. Hreinlætistæki eru frá Grohe og Tece.

Annað: Eignin afhendist fullbúinn samkvæmt byggingarstig B4. Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd. Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat. Allar byggingarteikningar afhendast samþykktar frá skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til kaupanda. Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar á teikningum sem hann kann að óska eftir.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ