Lýsing
Birt stærð: 138,9 fm. (þar af 5,3 fm. sérgeymsla)
Verktaki: JE Skjanni ehf. sjá heimasíðu verkefnisins hér
Lýsing eignar
Anddyri:
Rúmgott og bjart með harðparketi og þreföldum skápum sem tryggja gott geymslupláss.
Stofa og eldhús:
Mynda eitt rúmgott alrými, L-laga eldhúsi með eyju tengist stofu og borðstofu.
Innréttingar frá Kappa, vönduð tæki frá Bosch og Smith & Norland, meðal annars ísskápur, uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og bakaraofn í vinnuhæð.
Úr stofunni er útgengt á 16,3 fm. suðvestur svalir með flottu útsýni.
Hjónaherbergi:
Rúmgott (16,1 fm.) með góðu skápaplássi og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi:
Björt og vel skipulögð með innbyggðum skápum og harðparketi.
Baðherbergi og þvottahús:
Rúmgott og vandað baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum frá Agli Árnasyni. „Walk-in“ sturta, upphengt salerni og inn af baðherberginu er flísalagt þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gæði og búnaður
- Gólfhiti í allri íbúðinni
- Vönduð gólfefni og hljóðeinangrun
- Hvítar 90 cm hurðir frá Parka
- Dyrasímakerfi með myndavél
- Ljósleiðari og nettengingar (RJ45) inn í smáspennutöflu
- Sérgeymsla á neðstu hæð
- Lyfta og teppalagðir stigagangar með góðri lýsingu
- Hjóla- og vagnageymsla í sameign
- Sameiginleg 95 bílastæði, þar af nokkur með rafmagnslögnum fyrir rafbíla
Áshamar nýtt og barnvænt hverfi í Hafnarfirði þar sem leikskóli er í götunni og gönguleið í skóla án þess að fara yfir umferðargötu.
Stutt í falleg útivistarsvæði, leikvelli og þjónustu.
Ath: Myndir geta verið úr sambærilegri íbúð.
Ath: Svalalokanir sem sjást á tölvugerðum myndum fylgja ekki með íbúðinni.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn Helgafells fasteignasölu.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.