Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

214

svg

191  Skoðendur

svg

Skráð  2. sep. 2025

hæð

Álfheimar 21

104 Reykjavík

78.900.000 kr.

706.356 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2526005

Fasteignamat

64.900.000 kr.

Brunabótamat

51.140.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1961
svg
111,7 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Rúmgóð og mikið endurnýjuð 3-4ra herbergja kjallaraíbúð með sér inngangi auk vinnustofu/stúdíóíbúðar í bílskúr sem er í útleigu í góðu fjórbýli við Álfheima í Reykjavík. Eignin býður upp á góðar leigutekjur. Allt innbú getur fylgt íbúðinni. Nýlega var innréttuð stúdíóíbúð í bílskúr. Geymsla/herbergi og gestasalerni á hæðinni með sérinngang sem býður upp á útleigu.  Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 111,7fm. og þar af er vinnustofa 26fm. 
Fasteignamat fyrir árið 2026 verður 71.950.000kr. 


Nánari lýsing: 
Sér inngangur með fatahengi og flísalögðum stiga liggur niður í íbúðina.
Eldhús hefur nýlega verið allt endurnýjað með hvítri innréttingu, helluborð, ofn, gufugleypir, innbyggð uppþvottavél, ísskápur og parket á gólfi. Inn af  eldhúsi er innangengt inn í sameign hússins. 
Stofa og borðstofa rúmgóð með parketi á gólfi. 
Hjónaherbergi rúmgott með parketi á gólfi. 
Herbergi með parket á gólfi. 
Baðherbergi hefur allt verið endurnýjað með hvítri innréttingu, innangengri sturtu, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og flísar á gólfi og í sturtu. 
Geymsla/herbergi er á hæð íbúðar 11,8fm. og hefur verið nýtt sem herbergi og er á gangi sameignar. 
Gestasalerni er á móti geymslunni og er séreign íbúðarinnar. 
Sér inngangur er inn í sameign á hlið hússins á jarðhæð.
Vinnustofa/stúdíóíbúð er í bílskúr sem var útbúin árið 2020 og er í útleigu í dag.
Stofa og svefnrými með parketi á gólfi.
Eldhús með nýlegri innréttingu, helluborð, gufugleypir, ísskápur og parket á gólfi. 
Baðherbergi með sturtuklefa, innrétting undir vask, salerni, tengi fyrir þvottavél og parket á gólfi. 

Eignin er mikið endurnýjuð eins og t.d. eldhús, baðherbergi (2023), innihurðar (2023), gólfefni, rafmagn að mestu leyti endurnýjað og ný rafmagnstafla í sameign. Þá var húsið málað fyrir u.þ.b. 3-4 árum síðan og lítur vel út að utan.

Lóðin er 696,0 fermetrar að stærð, snyrtileg og sameiginleg. Tyrfður garður til suðvesturs með fallegum trjágróðri. Hellulögð stétt að húsinu og tyrfður bakgarður.

Um er að ræða frábæra í þessu vinsæla hverfi við Laugardalinn. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og menntaskóla. Íþróttasvæði, sundlaug og Laugardalurinn í næsta nágrenni. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
 

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík