Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigríður Jónasdóttir
Vista
svg

396

svg

308  Skoðendur

svg

Skráð  3. sep. 2025

raðhús

Staðarbakki 4

109 Reykjavík

120.000.000 kr.

738.462 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2046867

Fasteignamat

91.900.000 kr.

Brunabótamat

83.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1973
svg
162,5 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 9. september 2025 kl. 17:30 til 18:00

Lýsing

Bjart, fallegt og vel skipulagt 162,5 fermetra pallaraðhús með innbyggðum bílskúr til sölu að Staðarbakka 4, Reykjavík.
Samliggjandi stofa og borðstofa með útgengi á vestur svalir.  Frá sjónvarpsrými á fyrstu hæð er útgengi á stóran pall og garð.
Garðurinn er mjög fallegur með trjám, gosbrunni og á góðum stundum má  heyra fuglana syngja.

Vinsæl staðsetning í Bökkunum, stutt í helstu stofnbrautir, verslun, þjónustu, skóla og leikskóla.
Þá er útivistarparadísin Elliðaárdalurinn í næsta nágrenni ásamt góðum göngu- og hjólastígum.

 
Nánari lýsing
Mið pallur
Í forstofu er góður skápur með viðar rennihurðum. Úr forstofu er komið inn í hol og úr því er gengið inn í eldhús og gestasnyrtingu.
Úr holi er einnig gengið upp á efri og neðri palla hússins. Þrjú parketlögð þrep eru upp á efri pallinn og teppalagður stigi liggur niður á neðsta pallinn. Stigahandriðin eru úr burstuðu stáli og sandblánu öryggisgleri. Eldhús með ljósri innréttingu, flísum á milli skápa og góðum borðkrók.
Flísar á öllu gólfinu.
Efri pallur
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með útgengi á flísalagðar svalir sem liggja meðfram stofunum.
Tvö herbergi, annað stærra með skáp frá Axis og hitt minna.
Parket er á öllum efsta pallinum.
Neðri pallur
Tvö herbergi, annað stærra með skápum með rennihurðum frá Axis og parketi á gólfi. Hitt með skáp og parketi á gólfi.
Úr snjónvarpsholi er útgengi á viðarpall og fallegan garð. Flísar á gólfi með gólfhita.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, góðum skápum, „walk in“ sturtu og gólfhita.
Þvottahús með góðum hillum og máluðu gólfi.

Tvö hellulögð bílastæði með hitalögnum fyrir framan bílskúr. Heitt og kalt vatn í bílskúr.

Mjög fallegar viðar Ringo innihurðir eru í öllu húsinu. Pottofnar eru í stofu og öllum herbergjum ásamt forstofu.
Frábært hús í góðu og grónu hverfi sem hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, m.a. suðurgafl klæddur 2008 og norðugafl 2021
ásamt því að milligaflar milli húsa voru einnig klæddir þá.

Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Jónasdóttir löggiltur fasteignasali í síma 661-4141, eða gegnum tölvupóstfangið sigridur@bjarturfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0,8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: Af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv., kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

 

img
Sigríður Jónasdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Bjartur fasteignasala
Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur
Bjartur fasteignasala

Bjartur fasteignasala

Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur
img

Sigríður Jónasdóttir

Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur
Bjartur fasteignasala

Bjartur fasteignasala

Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur

Sigríður Jónasdóttir

Hlíðasmára 10, 201 Kópavogur