Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
163,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 8. september 2025 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Kristnibraut 89 - stórglæsileg efsta hæð mér sérinngangi í fallegu húsi.  Einstakst útsýni og fjallasýn, tvennar svalir og rúmgóður bílskúr.  Rut Káradóttir, innanhúsarkitekt, hannaði innréttingar og útfærslu á skipulag íbúðarinnar. 

Allar frekari upplýsingar vetir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@heimili.is - 895-1098. 


Íbúðin er á 3ju og efstu hæð og er sérinngangur af stigapalli. Komið er inn á opið anddyri með flísum. Stórt og sérlega bjart rými sem er eldhús, stofa og borðstofa. Í eldhúsinu er falleg hvít innrétting og eyja, útsýni til austurs. Borðstofa og stofa með fallegu viðarparketi (eik), stórglæsilegt útsýni til norðurs m.a. að Esjunni. Horngluggi í stofunni nýtir birtuna til fulls og setur sterkan svip á rýmið. Stórar svalir eru út frá borðstofunni. Stórt hjónaherbergi með parketi á gólfi, innaf er rúmgott innréttað fataherbergi.  Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi, rúmgóður fataskápur (forstofuskápur), útfrá ganginum eru svalir til suðurs og austurs með fallegu útsýni. Glæsilegt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, stórt upphækkað hornbaðkar með sturtu yfir, góð innrétting.  Stórt svefnherbergi með parketi og stórum hvítum fataskápum.  Barnaherbergi með parketi og fataskáp. 

Við anddyri er kommóða fyrir skó og annað. Innfelld lýsing er víða í loftum og frágangur almennt góður.  Bílskúrinn er mjög rúmgóður, 30,3 fermetrar að stærð.  Búið er að innrétta vinnu- /skrifstofuaðstöðu í hluta bílskúrsins og nettengja. Innangengt er í bílskúrinn frá sameign hússins. Í sameign er hjólageymsla og einnig sér geymsla sem fylgir íbúðinni. 

Eignin er virkilega glæsileg og sker sig úr með birtu sinni og einstöku útsýni. Hér er tækifæri til að eignast bjarta og rúmgóða íbúð þar sem útsýnið og náttúran eru órjúfanlegur hluti af daglegu lífi. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttasvæði Fram sem og fjölbreytta göngu- og hjólreiðastíga í fallegu umhverfi.


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Finnbogi Hilmarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Finnbogi Hilmarsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. des. 2020
53.050.000 kr.
61.500.000 kr.
163.2 m²
376.838 kr.
26. maí. 2015
35.250.000 kr.
40.500.000 kr.
163.2 m²
248.162 kr.
11. ágú. 2009
32.900.000 kr.
40.000.000 kr.
163.2 m²
245.098 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Finnbogi Hilmarsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík