Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2011
79,3 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Laus strax
Opið hús: 10. september 2025
kl. 17:45
til 18:15
Opið hús: Austurkór 5, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 302. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 10. september 2025 milli kl. 17:45 og kl. 18:15. Verið velkomin. *** Ragnar S: 844-6516 ***
Lýsing
Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Mjög björt, falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi í litlu fallegu fjölbýli á efstu hæð (gengið upp eina hæð) á vinsælum stað að Austurkór 5 í Kórahverfi Kópavogs. Eignin er alls skráð 79,3 fm. og skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu með borðstofuplássi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir með glæsilegu útsýni yfir stórt grænt svæði. Íbúar hússins eru búnir að sérmerkja bílastæði. Göngufæri er í verslun, skóla og leikskóla. Í hverfinu er Kórinn íþróttamiðstöð HK, fallegar gönguleiðir, útivistarsvæði og hesthús og stutt er á golfvöll. Eignin getur verið laus fljótlega.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is
Aðkoma: Beint af stóru bílaplani er gengið inn um sérinngang frá yfirbyggðum svalagangi. Aðkoman virkar snyrtileg og eru íbúar búnir að sérmerkja bílastæði.
Forstofa/anddyri: Komið er inn í flísalagða forstofu með loftháum þreföldum fataskáp. Hurð aðskilur forstofuna frá íbúðarrými.
Hol/svefnherbergisgangur: Frá forstofu tekur við hol og svefnherbergisgangur sem tengir saman aðalrýmið. Flæðandi eikarparket er á gólfi.
Eldhús: Falleg eikarinnrétting með hvítum efri skápum, dökkri plötu á borði, búið helluborði, bakaraofni, gufugleypi og uppþvottavél. Öll tæki eru frá þýska merkinu AEG. Eikarparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa eru samliggjandi og bjartar með eikarparketi á gólfi. Stórir gluggar gera rýmið bjart og skemmtilegt ásamt því að frá stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir með glæsilegu útsýni yfir grænt svæði og er staðsetningin því friðsæl.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með loftháum fataskápum og eikarparketi á gólfi.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi er annað svefnherbergi með loftháum fataskápum og eikarparketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með hvítum flísum á veggjum og ljósum flísum á gólfi. Skápar og falleg viðarinnrétting með handlaug. Upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu og glerskilrúmi.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er innan íbúðar. Flísalagt með ljósum flísum búið vinnuborðplássi og hvítum skápum. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Eigninni fylgir sér geymsla skráð 8,8 fm. ásamt því að sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er staðsett á jarðhæð sameignar.
Austurkór liggur á mörkum Kópavogs og Garðabæjar ofan við Smalaholtsskóg og Vífilsstaðavatn. Austurkór 5 er neðst í götunni og eru bæði leikskólar og grunnskóli í göngufæri. Glæsilegt íþróttasvæði HK í Kórnum er sömuleiðis í næsta nágrenni sem og hesthúsahverfið við Heimsenda. Skipulag hverfis er barnvænt og þarf til að mynda ekki að þvera götur á leið í leikskóla, skóla eða til íþróttasvæðis í Kórnum. Almenningssamgöngur eru góðar í hverfinu og stutt í næstu strætóbiðstöðvar, golfvöll, fallegar gönguleiðir sem og útivistarsvæði. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is
Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.
Áætluð gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er ca. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. júl. 2024
58.150.000 kr.
45.000.000 kr.
10302 m²
4.368 kr.
7. maí. 2012
17.000.000 kr.
21.300.000 kr.
79.3 m²
268.600 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025