Lýsing
Skógarbraut 916 í Reykjanesbæ er íbúðarhúsnæði á þremur hæðum, 8 íbúðir eru í hverjum stigagangi og hefur húsið fengið gott viðhald í gegnum árin. Íbúðirnar í húsinu eru 2-5 herbergja og eru á bilinu 90-125fm. Myndir í agulýsingu eru af sambærilegri eign í húsinu.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 122,6fm og þar af er geymsla 2,6fm.
Fasteignamat fyrir árið 2026 veðrur 56.150.000kr.
Nánari lýsing:
Anddyri með harðparketi á gólfi.
Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er út á sérafnotareit úr stofunni sem vísar út í garð.
Eldhús með nýlegri og fallegri innréttingu með helluborði, ofni, háf, innbyggðum ísskáp, innbyggð uppþvottavél og parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Innan af hjónaherbergi er baðherbergi með nýlegri innréttingu, innangendri sturtu og flísum á gólfi.
Svefnherbergin 3 eru rúmgóð með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari, handklæðaofn, upphengdu salerni, speglaskáp og flísum á gólfi og hluta veggja. Hreinlætistæki voru endurnýjuð árið 2018 og er frá Byko.
Gangur með innbyggðum skápum og parketi á gólfi.
Geymsla er á jarðhæð hússins eða sömu hæð og íbúðin.
Þvottahús er í sameign á hæð íbúðar þar sem hver íbúð er með sitt tengi.
Blokkin var sprunguviðgerð að utan árið 2018
Sameign er mjög snyrtileg, á gólfum eru nýleg gólfefni.
Nýlega endurnýjað hitaveitu ofna og lagnir þar sem þess þurfti, allar ofnlagnir voru úr eir og eru þær heillegar.
Neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar árið 2018 og frárennsli að plötu 1. hæðar.
Blokkin verður öll máluð að utan að kostnað seljandi sumarið 2025.
Íbúðirnar eru á Ásbrú sem er ört stækkandi samfélag á Suðurnesjum og stutt er í alla þjónustu og skóla. Einungis er um 30-40 mínútna akstur frá Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.